Samvinnufélagið Kea hagnaðist um 1.368 milljónir króna í fyrra samanborið við 1.430 milljónir króna árið 2024. Félagið segir afkomuna vel viðunandi miðað við aðstæður. Eignir Kea námu 12,6 milljörðum króna og eigið fé 12,3 milljörðum í lok síðasta árs. Afkoma fasteignatengdra félaga vó þyngst Hreinar fjárfestingatekjur Kea námu 1.606 milljónum króna og lækkuðu um 122 milljónir króna milli ára. „Afkoma félaga sem KEA á eignarhluti í batnaði að jafnaði frá fyrra ári og endurspeglast það í tæplega 1,2 milljarða króna jákvæðri gangvirðisbreytingu fjáreigna. Afkoma þess eignaflokks var því góð en þar vó þyngst afkoma fasteignatengdra verkefna félagsins,“ segir í tilkynningu á vef félagsins. Sjá einnig KEA kaupir eignasafn Íveru á Akureyri fyrir 5 milljarða Kea keypti 120 íbúðir á Akureyri af Íveru fyrir rúma 5 milljarða króna árið 2024. Í ársskýrslu Kea segir að nánast allar íbúðir dótturfélagsins Skálabrúnar, sem sinnir leigustarfsemi á íbúðamarkaði, hafi verið í útleigu í fyrra. „KEA vill sjá íbúðaleigustarfsemi Skálabrúnar vaxa með yfirveguðum hætti og horft er til þess að sá vöxtur geti orðið að einhverju leyti í gegnum eigin framleiðslu íbúða, a.m.k. miðað við núverandi aðstæður. Í því samhengi er horft til tilraunaverkefnis með erlendar forsmíðaðar húseiningar.“ Kea að mestu fullfjárfest Félagið segir að ólíkt fyrra ári hafi ekki verið miklar hreyfingar á eignarhlutum í fyrra enda sé félagið að mestu fullfjárfest og haldi nú á eignum sem það hyggst eiga til lengri tíma. „Unnið var að frekari þróun þeirra eigna sem félagið skilgreinir sem kjölfestueignir. Hlutafé var aukið í Norlandair til að styðja við innri vöxt þess. Jafnframt voru tveir samrunar samþykktir þar sem KEA á stóra eignarhluti en annar þeirra gekk ekki eftir í kjölfar synjunar Samkeppniseftirlitsins.“ Félagið segist horfa til þess það verði ekki með mikið fleiri en 3-4 kjölfestufjárfestingar til lengri tíma litið. Á aðalfundi félagsins voru Hildur Ösp Gylfadóttir, Kristinn Rúnar Tryggvason og Ólafur Jónsson kosin í aðalstjórn félagsins. Jafnframt var samþykkt tillaga stjórnar um að ráðstafa 35 milljónum króna til Menningar- og viðurkenningarsjóðs KEA. Helstu eignir: Fasteignafélög KEA (Fasteignafélagið Klappir ehf., Skálabrún ehf. og VL1 ehf.), 100% eignarhlutur Ferro Zink ehf., 100% eignarhlutur Grófargil ehf., 34% eignarhlutur Kælismiðjan Frost ehf., 20% eignarhlutur, Norlandair, 46% eignarhlutur SBA-Norðurleið, 20% eignarhlutur Smári Sparisjóður, 26% eignarhlutur Sparisjóður Þingeyinga, 9,8% eignarhlutur Stefna, 25% eignarhlutur TFII slhf., 6,1% eignarhlutur Útgáfufélagið ehf., 77,6% eignarhlutur