Samstæða Kaupfélags Skagfirðinga (KS) hagnaðist um 3,7 milljarða króna á síðasta rekstrarári. Þetta er betri afkoma en árið 2024 þegar hagnaðurinn nam 3,3 milljörðum. Rekstrartekjur samstæðunnar jukust úr 54,6 milljörðum króna í 71,5 milljarða á milli ára. Rekstrargjöld hækkuðu úr 47,3 í 61,9 milljarða króna á milli ára. Launakostnaður hækkaði um hátt í 5 milljarða, eða úr 14,1 milljarði í 19 milljarða. Ársverk hjá samstæðunni voru 1.255 á síðasta ári samanborið við 958 árið 2023. Aukin velta, kostnaður og fjöldi ársverka skýrist að mestu af því að Kjarnafæði Norðlenska varð hluti af KS-samstæðunni á síðasta ári. KS keypti Kjarnafæði Norðlenska árið 2024 en félagið varð ekki partur af samstæðunni fyrr en í fyrra vegna dómsmáls. KS keypti Kjarnafæði Norðlenska í kjölfar gildistöku laga sem gerðu það að verkum að kjötafurðastöðvar væru undanþegnar samkeppnislögum. Um miðjan nóvember 2024 komst Héraðsdómur Reykjavík að þeirri niðurstöðu að breytingin á búvörulögunum hefði ekki lagagildi og var KS gert að stöðva allar aðgerðir tengdar samruna félaganna. Hæstiréttur ákvað aftur á móti í maí 2025 að snúa við niðurstöðu héraðsdóms í málinu og því standa búvörulögin. Í ársreikningi KS kemur fram að rekstrartekjur Kjarnafæði Norðlenska hafi numið 13,6 milljörðum króna í fyrra og rekstrargjöld tæplega 13 milljörðum. Tap ársins nam tæplega 106 milljónum. Eignir félagsins námu 7,9 milljörðum í lok síðasta árs og eigið fé nam 898 milljónum. 106,5 milljarða eignir Eigið fé samstæðu KS, ásamt hlutdeild minnihluta, nam 64,5 milljörðum króna um síðustu áramót og voru eignir metnar á 106,5 milljarða. Í lok árs 2024 nam eigið fé 60,8 milljörðum króna og eignir voru metnar á 93 milljarða. Handbært fé frá rekstri nam 4,6 milljörðum króna í lok síðasta rekstrarárs samanborið við 4,8 milljarða í lok árs 2024. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .