Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjöldi dótturfélaga

Read Full Article →

Samstæða Kaupfélags Skagfirðinga (KS) hagnaðist um 3,7 milljarða króna á síðasta rekstrarári. Þetta er betri afkoma en árið 2024 þegar hagnaðurinn nam 3,3 milljörðum. Rekstrartekjur samstæðunnar jukust úr 54,6 milljörðum króna í 71,5 milljarða á milli ára. Rekstrargjöld hækkuðu úr 47,3 í 61,9 milljarða króna á milli ára. Launakostnaður hækkaði um hátt í 5 milljarða, eða úr 14,1 milljarði í 19 milljarða. Ársverk hjá samstæðunni voru 1.255 á síðasta ári samanborið við 958 árið 2023. Aukin velta, kostnaður og fjöldi ársverka skýrist að mestu af því að Kjarnafæði Norðlenska varð hluti af KS-samstæðunni á síðasta ári. KS keypti Kjarnafæði Norðlenska árið 2024 en félagið varð ekki hluti af samstæðunni fyrr en í fyrra vegna dómsmáls. KS keypti Kjarnafæði Norðlenska í kjölfar gildistöku laga sem gerðu það að verkum að kjötafurðastöðvar væru undanþegnar samkeppnislögum. Í ársreikningi KS er fjallað um félög í eigu samstæðunnar, en flest þeirra eru með starfsemi í landbúnaði og sjávarútvegi. Alls eru dótturfélögin nítján talsins en þar að auki á samstæðan eignarhluti í minnst fimmtán félögum til viðbótar. Fyrst ber að nefna 100% eignarhlut í dótturfélaginu FISK Seafood, en félagið rekur útgerðar og fiskvinnslustarfsemi samstæðunnar og er með fiskvinnslu og útgerð á Sauðárkróki og í Grundarfirði. Þá á KS-samstæðan 32,9% hlut í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum og er bókfært virði hans um 13,7 milljarðar króna. Einnig á félagið 14,8% í Iceland Seafood International hf. og er bókfært virði þess hlutar um 2,2 milljarðar króna. Þá á KS-samstæðan einnig 20% í Mjólkursamsölunni og er bókfært virði hlutarins um 1,8 milljarðar króna. Að auki á samstæðan 16% hlut í skipaflutningafyrirtækinu Thorcargow BV en bókfært virði hans er um 1,2 milljarðar króna. Þá á KS samstæðan 100% hlut í Esju Gæðafæði, 100% hlut í flutningafyrirtækinu Vörumiðlun og 83,4% hlut í Fóðurblöndunni. KS-samstæðan á einnig hluti í fjöldamörgum öðrum félögum sem tengjast ekki sjávarútvegi eða landbúnaði. Má nefna 50% hlut í Lundey fjárfestingarfélagi, sem hefur verið einn stærsti hluthafinn í VAXA Technologies, sem er hátæknifyrirtæki í smáþörungaræktun við Hellisheiðarvirkjun. Einnig á KS-samstæðan helmingshlut í skyndibitastaðnum Metró í Reykjavík. Þá á KS 50% hlut í Foss distillery, sem er með starfsemi í Kópavogi og framleiðir líkjöra, brennivín og vodka. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article