Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skel selur í Styrkási fyrir milljarð

Read Full Article →

Skel fjárfestingarfélags minnkaði hlut sinn í rekstrarfélaginu Styrkási fyrir einn milljarð króna í lok fyrsta ársfjórðungs. Eftir viðskiptin á Skel 31,6% hlut í Styrkási sem er metinn á 9,8 milljarða króna. Skel seldi 40 milljónir hluta á genginu 25,5 krónur á hlut til hóps fagfjárfesta, að því er kemur fram í tilkynningu fjárfestingarfélagsins vegna fyrsta ársfjórðungs. Í kjölfar viðskiptanna er Skel ekki lengur stærsti einstaki hluthafi Styrkáss. SÁ Horn IV slhf., sem er í eigu framtakssjóðsins Horns IV og þriggja lífeyrissjóða, er nú orðinn stærsti eigandinn en umrætt félag átti 32,3% hlut í Styrkási í lok síðasta árs. Horn IV er að mestu í eigu lífeyrissjóða. Styrkás var formlega stofnað af Skel fjárfestingarfélagi árið 2023 utan um Skeljung og Klett og var þá hugmyndin að byggja upp þjónustufyrirtæki á grunni þessara rekstrarfélaga. Horn IV fjárfesti í Styrkási fyrir 3,5 milljarða króna sumarið 2023. Styrkás keypti í kjölfarið Stólpa árið 2024 og Hreinsitækni og HRT þjónustu í fyrra. Sjá einnig Skel selur Gallon til Styrkáss Í febrúar síðastliðnum var greint frá því að Skel og Styrkás hefðu náð samkomulagi um sölu Skeljar á Gallon og 25% hlut í EBK ehf. til Skeljungs, dótturfélags Styrkás. Umsamið heildarverð (e. Enterprise Value) í viðskiptunum er 2.885 milljónir króna en kaupverð hlutafjár nemur 600 milljónum króna. Þar af verður um helmingur kaupverðs greiddur með útgáfu um 11,8 milljón nýrra hluta í Styrkási hf. Mynd tekin úr ársskýrslu Styrkáss. Styrkás tilkynnti í morgun um að félagið hefði skilað rekstrarhagnaði (EBIT) upp á 406 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2026. Það var 63 milljónum undir áætlun sem rakið var fyrst og fremst til hliðrun tekna milli ársfjórðunga. Sjá einnig Afkoma Styrkáss aðeins undir áætlun Styrkás tilkynnti í janúar um að stjórn félagsins hefði samþykkt að hefja undirbúning skráningar félagsins í Kauphöllina með það að markmiði að félagið verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027.

Share this article