Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Afkoma Styrkáss aðeins undir áætlun

Read Full Article →

Styrkás skilaði rekstrarhagnaði (EBIT) upp á 406 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2026. Það er 63 milljónir króna undir áætlun. „Frávikið skýrist af hliðrun tekna á milli ársfjórðunga þar sem þyngst vegur afhending seldra tækja hjá Kletti sem verður síðar á árinu en áætlun gerði ráð fyrir. Árstíðarsveifla er í rekstri Styrkás og er fyrsti ársfjórðungur umsvifaminnstur í rekstri samstæðunnar,“ segir í tilkynningu félagsins. Afkomuhorfur Styrkás fyrir árið í heild eru óbreyttar. Rekstrarhagnaður samstæðunnar er áætlaður á bilinu 3.350–3.650 milljónir króna árið 2026, án tillits til áhrifa Gallon. Sjá einnig Skel selur Gallon til Styrkáss Styrkás hf., sem stefnir í Kauphöllina á næsta ári, er rekstrarfélag stofnað árið 2022. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni, sem saman mynda samstæðu félagsins. Hvað Klett varðar kemur fram að pantanabók í sölu á tækjum og búnaði hafi verið í samræmi við áætlun en þungi í afhendingum verði á síðari hluta ársins, sem leiði til lægri afkomu á ársfjórðungnum en áætlun gerði ráð fyrir. Afkoma dekkjasviðs hafi hins vegar í takti við áætlun og áhersla sé lögð á hagræðingu í rekstri, m.a. með bættri nýtingu húsnæðis. Afkoma rekstrareiningarinnar Umhverfi og iðnaður, sem samanstendur af Hreinsitækni og HRT þjónustu, var lítillega undir áætlun sem er einkum rakið til tíðarfars í mars sem olli því að samningsbundin verkefni drógust fram í apríl. Styrkás segir áhugaverð fjárfestingarverkefni vera í skoðun til að auka umsvif sviðsins með innri vexti. Félagið segir að Skeljungur hafi skilaði afkomu umfram áætlun á ársfjórðungnum þrátt fyrir miklar sveiflur í olíuverði og aukinn kostnað við áhættuvarnir og fjárbindingu. Vel hafi tekist til í kostnaðaraðhaldi og selt magn verið umfram áætlun. Stólpi skilaði sömuleiðis afkomu umfram áætlun. Styrkás segir að vel hafi gengið í sölu og leigu húseininga hjá Stólpa og stór verkefni séu í vinnslu fyrir opinbera aðila. Unnið hafi verið markvisst í kynningar á húsnæðislausnum félagsins sem hafi skilað sér í auknum áhuga viðskiptavina. Sjá einnig Styrkás gefur út skulda­bréf fyrir 1,7 milljarða

Share this article