Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Rekstur Strætó undir áætlun

Read Full Article →

Strætó bs. hagnaðist um 12 milljónir króna í fyrra, en árið 2024 nam hagnaðurinn 204 milljónum. Áætlanir gerðu ráð fyrir 102 milljóna hagnaði. Rekstrartekjur námu 12.999 milljónum króna en áætlanir höfðu gert ráð fyrir 14,4 milljörðum í tekjur. Tekjur af fargjöldum námu 2.364 milljónum króna, sem var um 100 milljónum undir áætlun. Í ársreikningi segir að fargjaldatekjur og aðrar tekjur hafi tekið mið af auknu þjónustuframboði á síðari hluta ársins, en þar sem þjónustuaukningu var frestað frá upphafi árs fram til 17. ágúst urðu tekjur lægri en áætlað hafði verið. Rekstrarframlög eigenda, þ.e. sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins, námu 5.384 milljónum króna en áætlanir gerðu ráð fyrir að þær myndu nema 6.386 milljónum. Hluti framlaga var ráðstafað til stofnfjár í nýtt félag um almenningssamgöngur. Framlag frá ríkinu nam 2.652 milljónum, sem er talsverð aukning frá fyrra ári en engu að síður um 500 milljónum undir áætlun. Rekstrargjöld hækkuðu milli ára í takt við aukið þjónustuframboð á síðara hluta ársins, en kostnaðarauki nýs samnings um aðkeyptan akstur frá árinu 2024 hafði veruleg áhrif á reksturinn. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article