Dótturfélag Hólma ehf., aðaleiganda útgerðarfélagsins Eskju á Eskifirði, keypti 49 íbúðir í Stefnivogi af Skel fjárfestingarfélagi fyrir tæplega 4,2 milljarða króna í byrjun mánaðarins. Fiskimið ehf., dótturfélag Hólma, undirritaði þann 4. febrúar kaupsamning um kaup á 49 íbúðum að Stefnisvogi 2-26 af Skel. Birt stærð eigna er 4.932 fermetrar og nemur kaupverðið því 850 þúsund krónum á fermetrann. Með eignunum fylgja 49 bílastæði í bílageymslu. Sjá einnig Skel selur 49 íbúðir í Stefnisvogi fyrir 4,2 milljarða Skel greindi frá sölunni við birtingu ársuppgjörs félagsins þann 5. febrúar síðastliðinn. Ekki kom þó fram hver væri á kaupendahliðinni. Skel eignaðist 105 íbúðir að Stefnisvogi 2-36 á árunum 2023 og 2024 en hefur nú selt meira en helming þeirra. Hólmi er í eigu Þorsteins Kristjánssonar, forstjóra Eskju, og fjölskyldu. Eignir Hólma, sem á 94,6% hlut í Eskju á Eskifirði, voru bókfærðar á 38,8 milljarða króna í árslok 2024 og eigið fé var um 25,5 milljarðar. Hólmi á einnig ríflega 10% óbeinan hlut í fjárfestingarfélaginu Streng, stærsta hluthafa Skeljar með 51,6% hlut, í gegnum félagið M25 Holding sem er í meirihlutaeigu Ingibjargar Pálmadóttur. Hélt utan um eignarhlut í Icelandair Fiskimið ehf., dótturfélag Hólma ehf. var með eignir upp á 85 milljónir króna í árslok 2024, samkvæmt nýjasta ársreikningi félagsins. Aðaleign Fiskimiða á þeim tíma var eignarhlutur í Icelandair (57.571.477 hlutir) sem var metinn á 84 milljónir króna. Aðalsteinn Jónsson Þorsteinsson, sonur Þorsteins og einn eigenda Hólma, var skráður framkvæmdastjóri Fiskimiða fyrr í mánuðinum. Þess má geta að Aðalsteinn á 45% hlut í hótelfélaginu JAE, sem á m.a. Hótel Selfoss, á móti 45% hlut 365 hf., fjárfestingarfélags Ingibjargar. Aðalsteinn er framkvæmdastjóri vinnustofu Kjarvals.