Tryggvi Björnsson fjárfestir, sem hefur m.a. komið að stofnun Viking Pay, Stofnhúsum og JTV, er kominn í hóp 20 stærstu hluthafa Skeljar fjárfestingarfélags og Sjóvá, samkvæmt uppfærðum listum yfir stærstu hluthafa félaganna. Eignarhaldsfélagið ETIX ehf., sem er í 100% eigu Tryggva, átti 8,5 milljónir hluta, eða um 0,73% eignarhlut í Sjóvá. Markaðsvirði eignarhlutarins nemur 365,5 milljónum króna miðað við 43,0 króna dagslokagengi tryggingafélagsins í dag. Þá bættist ETIX við hóp stærstu hluthafa Skeljar og átti í lok apríl 11,9 milljónir hluti, eða um 0,63% eignarhlut sem er um 194 milljónir króna að markaðsvirði miðað við núverandi markaðsgengi upp á 16,3 krónur á hlut. Sjá einnig Selja blokk á 1,9 milljarða Tryggvi er eigandi TB Consulting ehf. sem á þriðjungshlut í félaginu Austurhólar ehf. sem vann að byggingu fjölbýlishúsa á Austurhólum 4-6 á Selfossi. Austurhólar ehf. veltu 2 milljörðum króna seldu fasteignir fyrir 3,8 milljarða króna á og högnuðust um 381 milljón króna á árunum 2023 og 2024 samkvæmt síðasta ársreikningi félagsins. Þess má geta að Tryggvi er formaður meistaraflokksráðs karla hjá Víkingi. Hann er giftur Eddu Rut Björnsdóttur sem var nýlega ráðin forstjóri Öryggismiðstöðvarinnar.