Fjárfestingarsjóðurinn REY III - Vöxtur, áður Eyrir Vöxtur, tapaði 401 milljón króna í fyrra, samanborið við 438 milljóna króna tap árið 2024. Sjóðurinn fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum sem komin eru af frum-sprotastigi og hafa möguleika til þess að vaxa hratt alþjóðlega, en heildarstærð sjóðsins er 6.620 milljónir króna. Á árinu fjárfesti sjóðurinn fyrir 497 milljónir króna, bæði með hlutafé og lánveitingum. Árið áður námu fjárfestingar ríflega milljarði. Sjóðurinn á meðal annars 25% hlut í Justikal ehf., 25,2% hlut í FÓLK Reykjavík, 28,3% hlut í Laka Power, 10,2% hlut í Tulipop, 8% hlut í Varist og 7,5% hlut í DTE. Bókfært verð eignarhluta í félögum nam 2.658 milljónum í lok árs 2025 og lánveitingar námu 318 milljónum. Hlutafé var aukið um 563 milljónir króna á árinu og nam tæplega 2 milljörðum í árslok. Fræ Capital er stærsti hluthafinn með 23,54% hlut og Nýsköpunarsjóðurinn Kría fer með 9,35% hlut en eftirstandandi hlutafé er að mestu í eigu lífeyrissjóða. Sjóðurinn er í stýringu ReykVC og er Kristinn Pálmason framkvæmdastjóri. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .