Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Meðlimir Framvís fjárfestu fyrir 3,7 milljarða

Read Full Article →

Meðlimir Framvís, samtaka engla og vísifjárfesta, fjárfestu alls fyrir 3,7 milljarða króna í íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum árið 2025 samkvæmt nýrri skýrslu félagsins um fjárfestingaumhverfi greinarinnar. Af heildarfjárhæðinni námu fjárfestingar vísisjóða um 3,4 milljörðum króna en fjárfestingar engla tæplega 260 milljónum króna. Í tilkynningu segir að þrátt fyrir samdrátt milli ára, sem rekja megi til aukinnar óvissu í alþjóðlegu efnahagsumhverfi, tvöfölduðust erlendar meðfjárfestingar frá árinu 2024 en síðustu níu ár hafa erlendar meðfjárfestingar samtals verið 75,7 milljarðar króna. Sjá einnig Stuðningur við nýsköpun á frum­stigi er mikilvægur fyrir fram­haldið Í fyrsta sinn var tekið saman skattspor nýsköpunarfyrirtækja en greiddir skattar námu um 4,5 milljörðum króna árið 2025. Þá er einnig dregið fram mikilvægi öflugs stuðningsumhverfis, svo sem hraðla og styrktarsjóða. „Yfir 2.000 manns starfa hjá fyrirtækjum í eignasöfnum sjóðanna og heildartekjur þeirra námu um 32 milljörðum króna árið 2025. Þessi fyrirtæki eru langflest í upplýsingatækni af einhverjum toga. Hafa ber í huga að þarna erum við einungis að skoða þau nýsköpunarfyrirtæki sem eru í eignasafni félaga í Framvís en ljóst er að þessi félög skila miklum tekjum til hins opinbera og skapa verðmæt störf,“ segir Helga Valfells, stjórnarformaður Framvís.

Share this article