Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjárfestingar og þróun sett á bið vegna óvissu

Read Full Article →

Reykjalundur var rekinn með 424 milljóna króna halla á síðasta ári. Stjórnendur stofnunarinnar vonast til að reksturinn verði í jafnvægi í ár eftir að gripið var til víðtækra hagræðingaraðgerða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjalundi. Af 424 milljónum eru 265 milljónir króna vegna niðurfærslu eigna og annarra einskiptisliða. Í tilkynningunni segir að óvissa um framtíðarskipulag endurhæfingarþjónustu hafi einkennt reksturinn á síðasta ári. „Í slíkri stöðu skapast óvissa sem hefur í för með sér að frekari fjárfestingar og þróunarverkefni eru sett í bið, enda þótt þörf fyrir endurhæfingarþjónustu fari sívaxandi.“ Enn fremur liggi ekki fyrir langtímasamningur við ríkið um þá endurhæfingu sem Reykjalundur veitir. „Meðal úrlausnarefna er að finna leiðir varðandi þátttöku ríkisins í húsnæðiskostnaði, líkt og annars staðar á Norðurlöndunum, en úr sér genginn húsakostur er helsta hindrunin í vegi starfseminnar.“

Share this article