Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bætist við hóp stærstu hluthafa Sýnar

Read Full Article →

Kristinn ehf., fjárfestingarfélag Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu, bættist við hóp tuttugu stærstu hluthafa fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins Sýnar í síðasta mánuði. Fjárfestingarfélagið átti í lok mars 3,5 milljónir hluta, eða um 1,4% eignarhlut í Sýn sem er um 74 milljónir króna að markaðsvirði. Kristinn ehf. er fjórtándi stærsti hluthafi Sýnar, samkvæmt uppfærðum lista yfir stærstu hluthafa félagsins. Óvíst er hvort Kristinn hafi keypt umræddan eignarhlut í mánuðinum eða hvort félagið hafi þegar átt í Sýn í gegnum framvirka samninga eða safnreikning. Eignir Kristins ehf. námu 33,5 milljörðum króna í árslok 2024 og eigið fé var um 22,9 milljarðar króna. Hlutabréf Kristins í félögum skráðum á innlendum hlutabréfamarkaði námu rúmlega 4,3 milljörðum króna í árslok 2024, samkvæmt síðasta ársreikningi fjárfestingarfélagsins. Kristinn er einnig sextándi stærsti hluthafi fasteignafélagsins Heima með 1,4% hlut sem er tæplega einn milljarður króna að markaðsvirði. Þá eiga Guðbjörg og fjölskylda hennar 49% hlut í Ísfélaginu, að markaðsvirði 57 milljarðar króna, í gegnum ÍV fjárfestingafélag ehf., dótturfélags Fram ehf. ÍV fjárfestingafélag var fjórði stærsti hluthafi Þórsmerkur, móðurfélags útgáfufélags Morgunblaðsins, með 13% hlut í árslok 2024. Stærstu hluthafar Sýnar í lok mars 2026 Hluthafi Fjöldi hluta Í % Gavia Invest ehf. 45.147.128 18,23% Gildi - lífeyrissjóður 40.589.224 16,39% Skel fjárfestingafélag hf. 25.000.000 10,09% Reir ehf. 20.650.000 8,34% LSR A-deild 13.678.286 5,52% InfoCapital ehf. 12.000.000 4,85% Arion banki hf. 11.059.035 4,47% Arcus Invest ehf. 11.026.599 4,45% Tækifæri ehf. 10.863.103 4,39% Birta lífeyrissjóður 8.519.283 3,44% Landsbankinn hf. 5.725.416 2,31% Gufupressan ehf. 5.000.000 2,02% Íslex ehf. 4.000.000 1,62% Kristinn ehf. 3.500.000 1,41% LSR B-deild 2.973.919 1,20% ÍV Íslensk hlutabréf 2.183.703 0,88% Módel 79 ehf. 2.000.000 0,81% Íslandsbanki hf. 1.534.197 0,62% A2411 ehf. 1.500.000 0,61% Acadian Frontier Markets 1.434.159 0,58%

Share this article