Sex einstaklingar gefa kost á sér til stjórnarsetu hjá fjölmiðla- og fjarskiptafélaginu Sýn fyrir aðalfund félagsins á fimmtudaginn, 26. mars. Stjórnarkjörið mun fara fram sem margfeldiskosning að beiðni hluthafa sem eiga yfir 10% hlut í félaginu, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Nefndin lagði til að Kjartan kæmi inn fyrir Pál Tilnefningarnefnd félagsins lagði til fyrir aðalfundinn að Kjartan Briem yrði kjörinn í stjórn Sýnar í stað Páls Gíslasonar sem sækist ekki eftir endurkjöri. Páll hefur setið í stjórninni frá árinu 2021. Kjartan er framkvæmdastjóri Isavia ANS, dótturfélags Isavia. Hann starfaði áður hjá Sýn og var hluti af framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2009 til 2020. Hann leiddi fyrir hönd Sýnar stofnun Sendafélagsins, samrekstrarfélags um rekstur radíódreifikerfa farsíma með Nova, sem hóf starfsemi 2015. Tilnefningarnefnd Sýnar lagði því til að eftirfarandi einstaklingar verði kjörnir í stjórn Sýnar: Hákon Stefánsson stjórnarformaður Heiðrún Lind Marteinsdóttir stjórnarmaður Petrea Ingileif Guðmundsdóttir stjórnarmaður Ragnar Páll Dyer stjórnarmaður Kjartan Briem Auk þeirra hefur Rannveig Eir Einarsdóttir boðið sig fram til stjórnar Sýnar. Hún sat í stjórn Sýnar frá því í október 2022 og fram til mars 2025. Rannveig Eir á ásamt eiginmanni sínum, Hilmari Þór Kristinssyni, byggingarfélagið Reir verk ehf. Félag þeirra hjóna, Reir ehf., er fjórði stærsti hluthafi Sýnar með 8,3% hlut. Með margfeldiskosningu gefst hluthöfum kostur á að skipta atkvæðamagni sínu í hverjum þeim hlutföllum sem þeir kjósa sjálfir á jafnmarga menn og kjósa skal eða færri. Þannig geta hluthafar sem dæmi lagt öll atkvæði sín á einn frambjóðanda fremur en að þurfa að deila þeim jafnt á fimm frambjóðendur.