Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Rannveig kjörin í stjórn Sýnar

Read Full Article →

Á aðalfundi Sýnar í dag var Rannveig Eir Einarsdóttir kjörin í stjórn fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins. Hún snýr því aftur í stjórnina en hún gegndi stjórnarstörfum hjá Sýn frá október 2022 og fram til mars 2025. Sex einstaklingar voru í framboði til stjórnar og fór kjörið fram sem margfeldiskosning að beiðni hluthafa sem á yfir 10% hlut í félaginu. Allir fjórir sitjandi stjórnarmenn Sýnar sem gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu voru endurkjörnir á fundinum. Tilnefningarnefnd Sýnar hafði lagt til að Kjartan Briem, framkvæmdastjóri Avians, dótturfélags Isavia, yrði kjörinn í stjórnina. Hann starfaði áður í framkvæmdastjórn Sýnar. Þess má geta að aðeins fimm einstaklingar, þ.e. allir frambjóðendur að Rannveigu undanskilinni, skiluðu inn framboði til aðalstjórnar fyrir tilskilinn frest til að fá umfjöllun hjá nefndinni. Skýrsla nefndarinnar var birt samhliða boðun aðalfundar þann 6. mars. Á sunnudaginn síðasta var tilkynnt um endanleg framboð til stjórnar og bættist Rannveig þá við lista yfir frambjóðendur. Sjá einnig Rannveig vill aftur í stjórn Sýnar Rannveig Eir á ásamt eiginmanni sínum, Hilmari Þór Kristinssyni, byggingarfélagið Reir verk ehf. Félag þeirra hjóna, Reir ehf., er fjórði stærsti hluthafi Sýnar með 8,3% hlut. Eftirtalin voru því kjörin í stjórn Sýnar á aðalfundi félagsins í dag: Hákon Stefánsson Heiðrún Lind Marteinsdóttir Petrea Ingileif Guðmundsóttir Ragnar Páll Dyer Rannveig Eir Einarsdóttir Formaður stjórnar er Hákon Stefánsson og varaformaður stjórnar er Ragnar Páll Dyer.

Share this article