Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nýir fréttastjórar Sýnar

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 22 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Nýir frétta­stjór­ar Sýnar Brynjólfur Þór Guðmundsson Atli Ísleifsson og Sunna Sæmundsdóttir eru orðin fréttastjórar á fréttastofu Sýnar. Árni Sæberg verður varafréttastjóri. Sunna hefur unnið á fréttastofu Sýnar frá 2017 og Atli frá 2014. Þau hafa bæði verið varafréttastjórar frá 2021. Kolbeinn Tumi Daðason, sem var fréttastjóri allra miðla Sýnar, varð ritstjóri fréttastofunnar þegar Erla Björg Gunnarsdóttir hætti í janúar. Atli og Sunna taka við stöðunni sem hann gegndi áður. Fréttastofa Sýnar flytur fréttir á Vísi, Bylgjunni og Sýn. Sýn Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Rangárþing ytra 459 millj­óna af­gang­ur hjá Rang­ár­þingi ytra Brynjólfur Þór Guðmundsson Um 459 milljóna króna afgangur var á rekstri Rangárþings ytra í fyrra þegar bæði eru tekin með sveitarsjóður og fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins. Ef aðeins er litið til sveitarsjóðs og starfseminnar, sem er að öllu leyti fjármögnuð með skatttekjum, nam afgangurinn 376 milljónum. Ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn í dag. Tekjur A og B hluta námu 4.324 milljónum og jukust um tólf prósent milli ára. Útgjöld hljóðuðu upp á 3.713 milljónir, það er tólf prósentum meira en í fyrra. Fánar Rangárþings ytra við hún á hringtorgi. RÚV / Þorgils Jónsson Fyrir 42 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Íran Hafa tekið 21 af lífi og hand­tek­ið 4.000 síðan stríð­ið byrj­aði Írönsk stjórnvöld hafa tekið að minnsta kosti 21 af lífi síðan stríðið í Mið-Austurlöndum byrjaði 28. febrúar. Rúmlega 4.000 hafa verið handteknir á sama tíma. Fyrir 49 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Forseti Íslands For­seta­hjón­in mæta í af­mæl­is­há­tíð­ar­höld Svía­kon­ungs Brynjólfur Þór Guðmundsson Halla Tómasdóttir forseti og Björn Skúlason, maki hennar, halda til Svíþjóðar í dag til að taka þátt í hátíðarhöldum á morgun vegna afmælis Svíakonungs. Karl Gústaf verður áttræður á morgun. Hann hefur verið konungur síðan 1973 og er valdatíð hans sú næstlengsta í sögu landsins. Halla og Björn taka þátt í hátíðarmessu í Slottskyrkan á morgun. Að henni lokinni verður afmælisdagskránni haldið áfram í konungshöllinni. Síðdegis býður borgarráð Stokkhólms til hádegisverðar. Afmælishátíðinni lýkur með kvöldverði annað kvöld. Allir þjóðhöfðingjar á Norðurlöndum og fleiri þjóðarleiðtogar og gestir verða viðstaddir hátíðarhöldin. Halla Tómasdóttir forseti. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Malí Frakk­ar hvatt­ir til að yf­ir­gefa Malí Ásrún Brynja Ingvarsdóttir Frönsk stjórnvöld hvetja franska ríkisborgara til þess að yfirgefa Afríkuríkið Malí við fyrsta tækifæri. Óstöðugt ástand er í landinu. Aðskilnaðarsinnar Túarega og herskáir íslamistar í Malí náðu um helgina völdum í bænum Kidal norðarlega í landinu, sem gegnir lykilhlutverki í stjórnsýslu norðurhlutans og vilja koma þar upp sjálfstæðu ríki. Umferð í Bamako á Malí, 27. apríl 2026. EPA / HADAMA DIAKITE Þar hafa herskáir íslamistar árum saman haft tögl og hagldir og gert líf íbúa þar nær óbærilegt með sprengjutilræðum, skotárásum og öðrum ódæðum. Frönsk yfirvöld ráða fólki eindregið frá ferðalögum til Malí, sem var frönsk nýlenda til ársins 1960. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Arkitektúr Nið­ur­rif bygg­inga kemur kannski betur út í Excel-skjali en hver ætli kostn­að­ur­inn sé fyrir sam­fé­lag­ið? Magnea Guðmundsdóttir arkitekt veltir fyrir sér hvort gjöld fyrir niðurrif og förgun séu of lág. Örlög gamla Morgunblaðshússins hafi til að mynda ráðist út frá því hvort hægt væri að leggja bílum í gamalli skrifstofubyggingu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ert þú í fram­boði? Vertu með í kosn­inga­prófi RÚV RÚV býður almenningi að máta sig við frambjóðendur á landinu öllu í kosningaprófi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Til þess þurfa frambjóðendurnir að svara prófinu fyrst. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál „Það er því miður arð­bært að hag­nýta fólk“ Sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum segir vinnumansal ekki fara minnkandi. Átakanlegt sé hversu mikil eftirspurn eftir vændi sé á Íslandi. Hún kallar eftir gerð stefnu og aðgerðaráætlunar í mansalsmálum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Verð­bólga hjaðn­ar milli mánaða Verðbólga var 5,2 prósent í apríl, 0,2 prósentustigum minni en mánuðinn á undan. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Snorri um breyt­ing­arn­ar miklu: „Ef ein­hvern tímann þá er það núna“ Snorri Steinn Guðjónsson ræddi þær miklu breytingar sem hann gerði á landsliðshópnum fyrir æfingaleiki gegn Egyptum. Snorri ræddi stöðu Björgvins Páls Gústavssonar, hvers vegna Egyptar urðu fyrir valinu og hvort að hann hugsi um HM á heimavelli. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Segja borg­ina koma sér undan því að bæta tjón starfs­fólks Formenn Eflingar og Sameykis gagnrýna Reykjavíkurborg fyrir að bæta ekki tjón sem starfsfólk hennar verður fyrir við störf sín. Þau segja starfsfólk látið bera skaðann af skemmdarverkum og þjófnaði skjólstæðinga. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Suður-Kórea Þyngja refs­ingu fyrr­ver­andi for­seta Brynjólfur Þór Guðmundsson Áfrýjunardómstóll þyngdi í dag dóm yfir Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseta Suður-Kóreu. Hann var sakfelldur í ársbyrjun fyrir að hindra framgang réttvísinnar í tengslum við tilraun til valdaráns 2024. Hann hlaut upphaflega fimm ára fangelsisdóm en refsingin var þyngd í sjö ára fangelsi eftir áfrýjun. Yoon hafði þegar verið sakfelldur fyrir tilraun til valdaráns og fékk fyrir það lífstíðardóm í fangelsi. Hann sætir líka ákæru fyrir að veita óvinum Suður-Kóreu liðsinni með því að senda dróna hersins til Norður-Kóreu snemma árs 2024. Hann neitar sök. Stuðningsmenn Yoon Suk Yeol með mynd af honum og slagorð. EPA / JEON HEON-KYUN Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skipu­lags­mál í brenni­depli í odd­vita­um­ræð­um í Garða­bæ Hvað skal vera í forgangi við uppbyggingu í Garðabæ? Á að fjölga sérbýlum, minni íbúðum eða menningarhúsum og hvernig passar nýr golfvöllur á Álftanesi inn í framtíðarskipulag bæjarins? Tekist var á um þetta og mun meira í oddvitaumræðum í gær. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Samfélagsmiðlar Fac­e­book og In­sta­gram brjóta reglur um að­gengi barna segir fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins Fyrstu niðurstöður rannsóknar Evrópusambandsins benda til þess að Meta, eigandi Facebook og Instagram geri ekki nóg til að hindra aðgang barna. Rannsóknin er gerð á grundvelli reglugerðar sem er í innleiðingarferli hjá EES-ríkjunum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hvess­ir norð­an­lands Hiti gæti farið í þrettán til fjórtán stig á Norðaustur- og Austurlandi í dag. Allhvasst verður norðan til en hægari vindur. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Indland Mætti með lík systur sinnar í bank­ann til að taka fé út af reikn­ingi hennar Indverskur karlmaður gróf upp lík systur sinnar og bar inn í bankaútibú til að sanna að hún væri látin eftir að starfsfólk bannaði honum að taka fé út af reikningum hennar án þess að framvísa dánarvottorði. Hann fær þó ekki féð nema gegn vottorði. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tölvu­leikja­spil reynd­ist upp­spretta hávaða sem talinn var heim­il­is­of­beldi Markús Þ. Þórhallsson Ungur maður sem spilaði tölvuleiki af kappi reyndist uppspretta tilkynningar til lögreglu um hávaða og mögulegt heimilisofbeldi í Mosfellsbæ. Skjáskot úr tölvuleiknum vinsæla, League of Legends. Ekki liggur fyrir hvaða tölvuleikur var uppspretta hávaðans í Mosfellsbæ. Ljósmynd / Skjáskot Frá þessu er greint í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og einnig því að karlmaður hafi verið handtekinn í vesturhluta Reykjavíkur eftir að hafa ógnað leigubílstjóra, reynt að komast hjá greiðslu fargjalds og flúið undan lögreglumönnum sem kallaðir voru til. Maðurinn reyndist vera undir áhrifum og var vistaður í fangaklefa að því er segir í dagbók lögreglunnar. Tveir meiddust lítillega í árekstri vespu og reiðhjóls og sama var upp á teningnum í tveggja bíla árekstri í Hafnarfirði. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Kóp­erník­us: Evrópa hlýnar tvö­falt hraðar en önnur svæði jarðar Loftslagsbreytingar verða til þess að Evrópa hlýnar tvöfalt hraðar en önnur svæði heimsins. Ný skýrsla sýnir að heitara var en að meðaltali í nánast öllum löndum álfunnar. Öfgar í veðri og miklir gróðureldar eru meðal birtingarmynda breytinganna. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Lík­legt þykir að þing­nefnd gangi eftir svörum stríðs­mála­ráð­herra um stöðu styrj­ald­ar­inn­ar Stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna kemur fyrir hermálanefnd fulltrúadeildar þingsins í dag. Búist er við að þingmenn gangi hart eftir svörum um stöðu Íransstríðsins. Bandaríkjaforseti sagði Bretakonungi að her Írana væri gersigraður. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Súdan Sam­ein­uðu þjóð­irn­ar segja mikinn heil­brigð­is­vanda fylgja um­fangs­miklu kyn­ferð­is­of­beldi stríð­andi fylk­inga Víðtæk beiting kynferðisofbeldis sem vopns í borgarastyrjöldinni í Súdan hefur valdið gríðarlegum geðheilbrigðisvanda að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og Lækna án landamæra. Erfitt og krefjandi sé að leita hjálpar, þótt brýnt sé. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Tals­verð aukn­ing í bíla­sölu — raf­bíl­ar meira keypt­ir hér en í Evr­ópu­ríkj­um Það sem af er ári er einn af hverjum þremur nýskráðum bílum rafdrifinn hérlendis. Í ríkjum Evrópu er markaðshlutdeild hreinna rafbíla nokkuð minni. Bílasala þar jókst nokkuð á fyrsta ársfjórðungi en greinendur segja kaupmátt geta dregist saman í ár. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Haítí Ken­ísk­ir lög­reglu­menn hætta glím­unni við ill­skeytt glæpa­gengi Allir þeir kenísku lögreglumenn sem liðsinntu yfirvöldum á Haítí í glímunni við illskeytt glæpagengi hafa yfirgefið landið. Uppfærð og öflugri sveit á að taka við hlutverkinu. Ofbeldi glæpagengjanna færist í vöxt og þau ráða sífellt stærri svæðum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kólumbía Sonur ind­versks auð­kýf­ings vill flóð­hesta Pablo Esc­o­bar Sonur ríkasta manns Asíu hefur boðist til að t

Share this article