Gufupressan ehf., félag Skúla Gunnars Sigfússonar, er orðið tíundi stærsti hluthafi fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækisins Sýnar með 4% hlut. Skúli Gunnar tvöfaldaði hlut sinn í Sýn milli mánaða samkvæmt uppfærðum lista yfir stærstu hluthafa félagsins. Hann átti í lok apríl 10 milljónir hluta í Sýn sem eru um 218 milljónir króna að markaðsvirði miðað við 21,8 króna dagslokagengi félagsins í dag. Til samanburðar átti hann 5 milljónir hluta, eða um 2% eignarhlut, í lok marsmánaðar. Sjá einnig Skúli byggir upp stöðu í Sýn Eins og Viðskiptablaðið greindi frá bættist Gufupressan fyrst við lista yfir stærstu hluthafa Sýnar þegar listinn var uppfærður miðað við lok janúar síðastliðins. Hann hefur síðan stækkað hlut sinn í fjarskiptafélaginu í hverjum mánuði síðan. Hlutabréfaverð Sýnar var á bilinu 16,9-18,3 krónur frá byrjun árs til 11. mars. Þegar tilkynnt var um samkomulag um sölu Sýnar á vef- og útvarpsmiðlum til Símans í 5,2 milljarða króna viðskiptum tók gengið stökk og hefur verið á bilinu 20,8-22,2 krónur á hlut síðan. Gufupressan ehf. er dótturfélag Leitis eignarhaldsfélags ehf., félags í 100% eigu Skúla Gunnars, sem var með eignir upp á 4 milljarða króna og 2,2 milljarða króna í eigið fé í árslok 2024. Meðal annarra eigna Leitis er Stjarnan ehf., rekstraraðili Subway á Íslandi, og Hótel Jökulsárlón ehf. Stærstu hluthafar Sýnar í lok apríl Hluthafi Fjöldi hluta Í % Gavia Invest ehf. 45.147.128 18,23 Gildi - lífeyrissjóður 40.589.224 16,39 Skel fjárfestingafélag 25.000.000 10,09 Reir ehf. 20.650.000 8,34 LSR A-deild 13.678.286 5,52 InfoCapital ehf. 12.000.000 4,85 Arion banki hf. 11.124.490 4,49 Arcus Invest ehf. 11.026.599 4,45 Tækifæri ehf. 10.863.103 4,39 Gufupressan ehf. 10.000.000 4,04 Birta lífeyrissjóður 8.519.283 3,44 Landsbankinn hf. 5.555.492 2,24 Íslex ehf. 4.000.000 1,62 LSR B-deild 2.973.919 1,20 ÍV Íslensk hlutabréf 2.183.703 0,88 Módel 79 ehf. 2.000.000 0,81 Íslandsbanki hf. 1.534.197 0,62 A2411 ehf. 1.500.000 0,61 Kvika banki hf. 1.282.231 0,52 H33 Invest ehf. 1.000.000 0,40