Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skúli Gunnar eykur stöðu í Sýn

Read Full Article →

Gufu­pressan ehf., félag í eigu Skúla Gunnars Sig­fús­sonar, eig­anda Subway á Ís­landi, heldur áfram að byggja upp stöðu í fjar­skipta- og fjölmiðla­fyrir­tækinu Sýn. Sam­kvæmt saman­tekt Akkurs á hlut­haf­alista Nas­daq á Gufu­pressan ehf. nú 4.464.900 hluti í Sýn, sem sam­svarar 1,80% eignar­hlut. Mánuði fyrr var félagið með 3.464.900 hluti, eða 1,40%, og hefur því bætt við sig 1.000.000 hlutum á milli mánaða. Eignar­hluturinn hækkar við það um 0,40 pró­sentu­stig. Gufupressan ehf. er dótturfélag Leitis eignarhaldsfélags ehf., félags í 100% eigu Skúla Gunnars, sem var með eignir upp á 4 milljarða króna og 2,2 milljarða króna í eigið fé í árslok 2024. Meðal annarra eigna Leitis er Stjarnan ehf., rekstraraðili Subway á Íslandi, og Hótel Jökulsárlón ehf. Gengi Sýnar á uppleið Í saman­tektinni kemur fram að velta með hluta­bréf Sýnar í febrúar hafi verið um 48,5 milljónir króna og að 2,82 milljónir hluta hafi gengið kaupum og sölum, sem nemur um 1,1% af út­gefnu hluta­fé. Vegið meðal­gengi í mánuðinum var 17,21 króna. Dagsloka­gengi Sýnar var 17,5 krónur á hlut í gær.

Share this article