Internet á Íslandi hf. (ISNIC) hagnaðist um 256 milljónir króna í fyrra, samanborið við 229 milljónir árið 2024. Er þetta mesti hagnaður félagsins frá upphafi. Rekstrartekjur námu 571 milljón sem er aukning um 8,3% milli ára. ISNIC er skráningarstofa landshöfuðlénsins .is og sinnir rekstri þess auk þess að reka miðlæga internettengipunktinn RIX. Í byrjun ársins var komist að samkomulagi um kaup SÍA IV slhf., framtakssjóðs í rekstri Stefnis og að meirihluta í eigu lífeyrissjóða, á 74% hlutafjár félagsins. Sjá einnig Kaupa meirihluta í Interneti á Íslandi hf. Í árslok 2025 var hlutafé félagsins alfarið í eigu ISNIC holding ehf., sem er samkvæmt upplýsingum Skattsins alfarið í eigu sjóðsins. Ólöf Pétursdóttir er sjóðstjóri SÍA IV. Íslandspóstur átti 19,57% hlut í félaginu í byrjun árs 2025. Samkvæmt ársreikningi Íslandspóst, sem birtur var á dögunum, var eignarhluturinn seldur á 871 milljón króna en bókfærður söluhagnaður var 756 milljónir. Miðað við það var ISNIC metið á ríflega 4,4 milljarða króna í viðskiptunum. Jens Pétur Jensen, sem átti ríflega 30% hlut í félaginu fyrir söluna, lét af störfum á árinu en hann hafði gegnt stöðu framkvæmdastjóra frá árinu 2007. Sonur hans, Þór Jensen, hefur nú tekið við sem framkvæmdastjóri. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .