Iceland Seafood International (ISI) hagnaðist um tæplega 7,4 milljónir evra á árinu 2025, eða sem nemur tæplega 1,1 milljarði króna. Það samsvarar 165% hækkun frá fyrra ári þegar félagið hagnaðist um 2,8 milljónir evra. Hagnaður ISI á fjórða ársfjórðungi nam 4,8 milljónum evra, samanborið við rúmlega 4,2 milljónir evra árið áður. Í afkomutilkynningu ISI kemur fram að rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir skatta hafi verið yfir afkomuspá og fyrra ári. Upphafleg afkomuspá fyrir árið var að hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta yrði á bilinu 1,1-1,4 milljarðar króna en niðurstaða ársins sé 1,5 milljarður króna. Velta félagsins nam 484 milljónum evra, eða um 70 milljörðum króna, í fyrra og jókst um 9,3% milli ára. EBITDA-hagnaður félagsins jókst um 21,8% og nam 22,8 milljónum evra eða um 3,3 milljörðum króna. Ægir Páll Friðbertsson, forstjóri ISI, segir að árið 2025 hafi verið öflugt rekstrarár fyrir félagið. Allar starfseiningar hafi skilað jákvæðri rekstrarafkomu. ISI spáir því að aðlöguð afkoma félagsins fyrir skatta (e. normalised pre-tax profit/loss, NPBT) muni aukast milli ára. „Á árinu 2025 sáum við hækkandi verð á þorski, skyldum tegundum og makríl, samhliða stöðugri eftirspurn á mikilvægum mörkuðum okkar. Verð á laxi var aftur á móti lægra og stöðugra en á fyrra ári og var það jákvætt fyrir laxatengda starfsemi okkar.” Áfram sé gert ráð fyrir að þorsksverð haldist hátt, á meðan meiri óvissa ríki um laxaverð. Ægir Páll segir fjórða ársfjórðung hafa verið sérstaklega sterkan og í samræmi við árstíðasveiflur, þar sem sala jókst frá sama tímabili árið áður. Góð sala í jólavertíð á Írlandi og á Spáni, ásamt góðri frammistöðu í frystum og ferskum vörum frá S&D, hafi þar átt stóran þátt.