Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslandspósts, var sigri hrósandi í uppgjörstilkynningu þar sem greint var frá 581 milljóna króna hagnaði ríkisfyrirtækisins á síðast ári. Hagnaður jókst um tæplega 400 milljónir frá fyrra ári og sagði hún tölurnar til marks um að breytingar sem gerðar hafa verið á starfseminni undanfarin ár hafi verið að skila sér. Þegar betur er að gáð má aftur á móti sjá að aukinn hagnað má alfarið rekja til 756 milljóna söluhagnaðar vegna sölu á hlut Íslandspóst í Internet á Íslandi, betur þekkt sem ISNIC. Það varð sem sagt rekstrartap af reglulegri starfsemi og því erfitt að sjá að breytingarnar sem forstjórinn minnist á hafi miklu skilað, a.m.k. á síðasta ári. Í ávarpi Þórhildar og stjórnarformannsins Péturs Más Halldórssonar kemur fram að eignarhald félagsins standi því fyrir þrifum. Nú er bara að vona að Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hlusti á ákallið og beiti sér fyrir sölu fyrirtækisins. Huginn og Muninn eru einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .