Styrkás var stofnað árið 2022 sem rekstrarfélag utan um öflug og rótgróin fyrirtæki á íslenskum atvinnumarkaði. Frá upphafi hafa Skeljungur og Klettur verið hluti af samstæðunni, Stólpi bættist við skömmu síðar og í lok árs 2025 gekk Hreinsitækni einnig inn í hópinn. Saman mynda þessi félög sterka heild undir merkjum Styrkáss. „Með þátttöku okkar á sýningunni viljum við minna á okkur og þann styrk sem felst í samstæðunni,“ segir Sveinn Símonarson, viðskiptastjóri hjá Styrkás. „Félögin eru hvert um sig mjög þekkt á sínum markaði, en saman getum við boðið viðskiptavinum enn breiðari og öflugri þjónustu.“ Styrkás er leiðandi þjónustufyrirtæki og starfar á fyrirtækjamarkaði. Starfsemin byggir á fjórum kjarnasviðum. Í fyrsta lagi er það orka og efnavara þar sem Skeljungur gegnir lykilhlutverki við að halda hjólum atvinnulífsins gangandi með sölu og dreifingu á eldsneyti og efnavöru. Í öðru lagi eru tæki og búnaður, þar sem Klettur annast sölu og þjónustu á öflugum vélum og búnaði. Í þriðja lagi er eignaumsýsla og leigustarfsemi undir merkjum Stólpa og loks umhverfisþjónusta og iðnaður þar sem Hreinsitækni er leiðandi í þjónustu við sveitarfélög og stóriðju. Á sýningunni verða öll félögin sýnileg undir sameiginlegu merki Styrkás. „Við ætlum að vera með vörur og búnað frá hverju félagi fyrir sig,“ útskýrir Sveinn. Hreinsitækni mun meðal annars sýna gestum frárennslis- og skólplagnamyndavél sem sýnir hvernig ástand lagna er metið. Klettur verður með tæki og búnað úr sínu framboði, þar á meðal þekkt vörumerki á sviði vinnuvéla og rafstöðva. Skeljungur verður með ýmsar hágæða efnavörur til að sýna gestum sýningarinnar. Stólpi mun sýna lausnir sínar í aðstöðu- og gámalausnum fyrir byggingariðnað og verktaka, hvort sem um er að ræða verkefni inni í borg eða uppi á hálendi. Stólpi hefur vakið athygli fyrir þróun á vistarverum og einingalausnum sem henta bæði fyrir starfsemi verktaka og jafnvel sem skrifstofu- og íbúðarhúsnæði. „Þróunin hefur verið hröð og metnaðarfull,“ segir Sveinn og bendir á að möguleikarnir í húseiningalausnum séu í raun ótakmarkaðir. Fyrirtæki með áratuga sögu og sterka sérstöðu Þrátt fyrir að félögin starfi nú innan einnar samstæðu eru þau rekin sem sjálfstæðar einingar með áratuga sögu og sterka sérstöðu. „Það er mikill styrkur í því að halda í sjálfstæðið og sérþekkinguna en á sama tíma njóta samlegðaráhrifa innan samstæðunnar,“ segir hann. „Við getum þjónustað lykilviðskiptavini okkar á mun heildstæðari hátt en áður.“ Sjálfur kom Sveinn til Styrkáss úr Kletti en í dag starfar hann sem viðskiptastjóri á samstæðugrunni og sinnir lykilviðskiptavinum þvert á félögin. Hlutverk hans er að tryggja að stærstu viðskiptavinir samstæðunnar njóti sem bestrar þjónustu frá öllum félögunum. „Við þjónustum flest sveitarfélög landsins, stóran hluta sjávarútvegsfyrirtækja og stærstu verktakafyrirtækin á einn eða annan hátt. Það er gríðarlegur styrkur að geta mætt þeim með heildarlausn.“ Fram undan eru einnig spennandi tímar. Stefnt er að því að Styrkás verði skráð í Kauphöll um mitt ár 2027. Fram að því er unnið markvisst að áframhaldandi vexti samstæðunnar, með það að markmiði að halda áfram að efla þjónustu við íslenskt atvinnulíf. Aðspurður um hvað sameini félögin segir Sveinn að þjónustan sé kjarninn í öllu starfi þeirra. „Við erum fyrst og fremst þjónustufyrirtæki. Þó að við séum með öflug umboð og framúrskarandi vörur, þá er DNA-ið okkar að veita yfirburða-þjónustu. Það er rauði þráðurinn í allri starfseminni.“ Með sameiginlegri þátttöku á sýningunni vill Styrkás því ekki aðeins sýna vörur og búnað, heldur undirstrika heildar-styrk samstæðunnar og þá þjónustu sem hún veitir íslensku atvinnulífi.