Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Heildstæðar og sveigjanlegar lausnir fyrir fyrirtæki

Read Full Article →

Fyrirtæki standa í dag frammi fyrir auknum kröfum um hagkvæman og fyrirsjáanlegan rekstur, ekki síst þegar kemur að endurnýjun og rafvæðingu bílaflota. Þá skiptir máli að geta leitað til aðila sem býður upp á heildstæða þjónustu, allt frá vali á bifreiðum til rekstrarlausna og eftirfylgni. „Ég hef starfað hjá Öskju í um tíu ár og þar af rúmt ár hjá fyrirtækjasviði. Þetta er svið sem hefur verið í mikilli þróun og í dag erum við fjórir starfsmenn sem þjónustum fyrirtæki með lausnum sem eru sniðnar að þeirra rekstri,“ segir Jón Þór Eggertsson, söluráðgjafi fyrirtækjasölu og verkefnastjóri Kia atvinnubíla hjá bílaumboðinu Öskju. Hann segir áhersluna vera á að mæta ólíkum þörfum, hvort sem um ræðir minni rekstrarfélög eða stærri flota með sértækar kröfur. „Við bjóðum bæði upp á kaup og Jón Þór Eggertsson, söluráðgjafi fyrirtækjasölu og verkefnastjóri Kia atvinnubíla hjá bílaumboðinu Öskju. ustu misserum og hefur Kia verið sérstaklega áberandi í þeirri þróun. Nú er kominn rekstrarleigu. Rekstrarleiga hefur reynst sérstaklega vel fyrir fyrirtæki sem vilja hafa skýran kostnað og einfaldari rekstur, án þess að óvænt útgjöld komi inn. Um leið er aukin krafa um að fyrirtæki rafvæði flotann sinn og þar komum við sterkir inn með vaxandi úrvali rafbíla.“ Þjónusta sem er sniðin að þörfum fyrirtækja Jón Þór segir að þjónustan hjá Öskju sé sérstaklega byggð upp með þarfir fyrirtækja í huga. Markmiðið sé að lágmarka stopp í rekstri og gera þjónustu eins skilvirka og mögulegt er. „Við erum með vaktir á verkstæðum sem gera fyrirtækjum kleift að skilja bíl eftir í lok vinnudags og sækja hann tilbúinn daginn eftir. Þá bjóðum við upp á lyklabox þar sem hægt er að nálgast bíla allan sólarhringinn, auk lánsbíla á meðan bifreið er í þjónustu.“ Hann segir að fyrirtæki leiti í auknum mæli eftir einföldum lausnum þar sem bifreiðar, þjónusta og rekstur fara saman. Sterk vörumerki og aukið rafbílaframboð Fyrirtækjasvið Öskju byggir á sterkum vörumerkjum á borð við Mercedes-Benz, Kia, Honda, Xpeng og Smart. „Þessir bílar styrkja stöðu okkar enn frekar í rafvæddum atvinnubílum og sýna vel hvert markaðurinn er að stefna.“ Með því getur Askja boðið fjölbreytt úrval bifreiða fyrir atvinnulífið, allt frá smærriborgarbílum upp í sérútbúna atvinnu- og sendibíla. Rafbílaframboð hefur aukist hratt á síðustu misserum og hefur Kia verið sérstaklega áberandi í þeirri þróun. Nú er kominn nýr og alrafmagnaður sendiferðabíll, Kia PV5, sem hefur vakið mikla athygli og sópað til sín verðlaunum á alþjóðamarkaði. „Kia PV5 er með skráða drægni allt að 416 kílómetra og hefur sýnt fram á framúrskarandi raundrægni í prófunum, sem skiptir miklu máli fyrir fyrirtæki sem vilja hámarka nýtingu yfir vinnudaginn. Þess má til gamans geta að PV5 sló heimsmet Guinness í drægni í sínum flokki,“ segir Jón Þór. Á sýningunni Verk og vit 2026 mun Askja kynna Kia PV5 sérstaklega, ásamt Mercedes-Benz eSprinter 2.0. „Þessir bílar styrkja stöðu okkar enn frekar í rafvæddum atvinnubílum og sýna vel hvert markaðurinn er að stefna. Rafvæðingin er komin til að vera. Við viljum vera sterkur samstarfsaðili fyrirtækja í þeirri vegferð, með breitt vöruúrval, öfluga þjónustu og lausnir sem henta atvinnulífinu,“ segir Jón Þór að lokum.

Share this article