Innlent | mbl | 23.4.2026 | 22:50 „Eigum að laða að okkur fyrirtæki en ekki fæla frá“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. mbl.is/Eyþór Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta er auðvitað dæmigert fyrir viðhorf borgarinnar gagnvart atvinnurekstri sem hefur ríkt núna um langt skeið og Hekla er bara eitt dæmi af mörgum stórum og öflugum fyrirtækjum sem við missum úr höfuðborginni,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg. Segir Hildur borgina eiga að laða að sér fyrirtæki en ekki fæla þau frá. Tilefnið er ummæli Friðberts Friðbertssonar, forstjóra Heklu, um undarleg vinnubrögð og hringlandahátt innan borgarkerfisins sem olli Heklu bæði töfum og kostnaði vegna fyrirhugaðra flutninga fyrirtækisins af Laugavegi og varð að lokum til þess að fyrirtækið fluttist úr borginni. Frétt af mbl.is Ákvörðun Heklu að nýta ekki vilyrðið Frétt af mbl.is Flókið, erfitt og tímafrekt að þétta í borginni Mikil synd Hildur segist einnig geta nefnt Icelandair sem dæmi og Malbikunarstöðina Höfða, fyrirtæki í eigu borgarinnar sem ekki hafi fengið lóð í borginni. „Hér hefur ekki verið skipulagt nægilegt magn atvinnulóða og við höfum séð nágrannasveitarfélög og jafnvel sveitarfélög lengra frá sækja fastar þegar kemur að því að keppa um fyrirtækin og laða þau til sín.“ Hún bætir Tækniskólanum í upptalninguna. Stórri menntastofnun sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hefðu gjarnan viljað halda í höfuðborginni. „Ég lagði mikla áherslu á að við myndum bjóða þeim æskilega lóð fyrir sameinaða starfsemi en Hafnarfjörður hljóp hraðar og frábært fyrir Hafnarfjörð auðvitað, en mikil synd fyrir Reykjavík að hafa misst skólann úr höfuðborginni.“ Frétt af mbl.is Borgin fór á mis við nokkra milljarða Þjónusta en ekki eftirlit Hildur segir Sjálfstæðisflokkinn í borginni vilja breyta þessari stefnu og stórbæta samskiptin við atvinnulífið í Reykjavík. „Við eigum að vera að laða að okkur fyrirtæki en ekki fæla þau frá. Við viljum sjá borgarkerfið þjónustuvætt en það hefur meira verið í eftirlitshlutverki og að leggja stein í götu þeirra sem eru að sækja fram, reyna að skapa verðmæti og gera gagn. Kerfið hefur verið mjög þunglamalegt og afgreiðir erindi seint og illa sem er m.a. skýring atvinnurekenda á því að fyrirtæki velji að starfa annars staðar en í Reykjavík, sem og skortur á atvinnulóðum, ósamkeppnishæfir fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði – þeir hæstu á höfuðborgarsvæðinu og ósveigjanleg, óvinveitt og þunglamaleg stjórnsýsla. Höfuðborgin á auðvitað að vera í forystu og við eigum að vera eftirsóknarverðasti staðurinn fyrir fyrirtækin í landinu að starfa. Við viljum ekki setja punktinn þar. Við viljum líka laða að okkur erlend nýsköpunarfyrirtæki. Við viljum vera eftirsóknarverður staður fyrir, hugvit og nýsköpun og dugmikið fólk til að sækja fram.“ Frétt af mbl.is Hekla skoðar höfuðstöðvar í Garðabæ Borgarþróun á aldrei að hrekja fyrirtæki á brott Um brotthvarf Heklu úr borginni eftir að fyrirtækið missti lóðina í Mjóddinni segir Hildur að ýmsar aðstæður geti komið upp þar sem borgarþróun verði með einhverjum hætti en það eigi aldrei að leiða til þess að fyrirtæki séu hrakin í önnur sveitarfélög. „Við sjáum til dæmis hvernig nú er að byggjast upp íbúðahverfi á Ártúnshöfðanum. Þar eru fyrirtæki hrakin burt. Mjög illa er staðið að málum gagnvart mjög mörgum atvinnurekendum þar, sérstaklega litlum og meðalstórum fyrirtækjum, sem hefur verið gert að rífa sín húsnæði án þess í raun að fá krónu með gati í bætur. Þetta er þvílíkt tjón fyrir fólk sem er með allt ævistarf sitt þarna undir. Við viljum ganga til viðræðna við þessa atvinnurekendur á Ártúnshöfðanum og fleiri stöðum sem standa í þessum sporum og vinna með þeim að lausnum. Við getum ekki hugsað okkur að fyrirtækin í borginni verði fyrir svona miklu tjóni?““ Hildur kallar eftir jafnræði í lóðamálum í Reykjavík. „Við sjáum að einhverjir fá gefins uppbyggingarheimildir, einhverjir afsláttarkjör, aðrir borga fullt verð og á sama tíma er öðrum gert að hypja sig.“ Hvernig má það vera að öflugt fyrirtæki með vilyrði fyrir atvinnulóð, sem lagt hefur í umtalsverðan kostnað vegna undirbúnings uppbyggingar, missi lóð sína til annars félags? „Við í minnihlutanum fáum ekki alltaf góða innsýn í það sem gengur á bak við tjöldin en auðvitað dettur manni til hugar miðað við þá hugmyndafræði sem keyrð hefur verið áfram af þessum meirihlutum sem hafa ríkt hérna um lengra tímabil undir forystu Samfylkingar að þau hafi hreinlega ekki viljað bílaumboð í Reykjavík. Helst viljað fækka þeim. Það er auðvitað það sem manni kemur helst til hugar.“ Frétt af mbl.is Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang „Eigum að laða að okkur fyrirtæki en ekki fæla frá“ Myndir: Söngvahátíð barnanna í Hallgrímskirkju „Þurfum bara að hugsa um mánudaginn“ „Mjög gaman að vera kominn“ Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Mest lesið Í gær Í vikunni Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang „Eigum að laða að okkur fyrirtæki en ekki fæla frá“ Myndir: Söngvahátíð barnanna í Hallgrímskirkju „Þurfum bara að hugsa um mánudaginn“ „Mjög gaman að vera kominn“ Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Börnin vilja vinna meira með fíknivanda sinn Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Heimsókn konungsins muni endurreisa sambandið Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Mest lesið Í gær Í vikunni Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum