Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ákvörðun Heklu að nýta ekki vilyrðið

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2026 | 12:56 Ákvörðun Heklu að nýta ekki vilyrðið Frá uppsteypuvinnu við fjölbýlishúsið á Laugavegi 170 síðsumars 2023. Bílaumboðið Hekla er í baksýn. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, spyr sig hvort útlegging Friðberts Friðbertssonar forstjóra Heklu um að borgin hafi orðið af milljörðum vegna þess tíma sem samningar á Heklureit hafi tekið hafi verið tilraun til gamansemi, en þar vísar hann í ummæli Friðberts í Morgunblaðinu í gær. „Ef þetta er í alvöru sagt er hér komin ein hraustlegasta ræða fyrir þéttingu byggðar sem ég hef lesið,“ segir Dagur. Hann segir orð Friðberts gefa til kynna að ekki sé eingöngu skynsamlegt að þétta byggð heldur megi beinlínis reikna af því mörg hundruð milljóna tap, eða milljarða, í hvert skipti sem það sé ekki gert eða að samningar eða uppbygging taki tíma. „Ég held að Reykjavíkurborg eigi að fá forstjóra Heklu til að reikna hvað kostnaðurinn við frestun á flutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýri hafi kostað. Með þessum reiknikúnstum eru það örugglega þúsundir milljarða,“ segir Dagur í skriflegu svari við fyrirspurn um viðbrögð hans við ummælum Friðberts. Hvað upphaf viðræðna við Heklu varðar segir Dagur fyrstu hugmynd fyrirtækisins hafa verið að fá grænt svæði milli íbúðarhúsa hinum megin við götuna, lóð í eigu Reykjavíkurborgar, undir bíla eða bílahús. Það hafi ekki þótt góð hugmynd og fljótlega í samtölum hafi aðilar verið sammála um að þessi staðsetning bílaumboðs væri barn síns tíma. Hekla vildi sérstaka samninga Borgarstjórinn fyrrverandi segir að það sem tafið hafi samninga um Heklureit hafi verið að Reykjavíkurborg hafi verið skýr á því að samningurinn þar þyrfti að vera sambærilegur við aðra slíka samninga. „Hekla vildi sérstaka samninga. Á það var ekki hægt að fallast, meðal annars vegna sjónarmiða um jafnræði sem borgin þarf alltaf að virða.“ Dagur svaraði því ekki efnislega hvernig staðið hefði á því að borgin hefði virst veita sumum undanþágu frá innviðagjöldum, en Friðbert nefndi sérsamninga í því sambandi þar sem borgin felldi niður gjöld tengd uppbyggingu á bensínstöðvareitum. Borgarstjórinn rifjar þá upp að ýmsar staðsetningar hafi verið skoðaðar fyrir Heklu og að samstaða hafi loks náðst um staðsetninguna í Mjódd. „Það var á endanum ákvörðun fyrirtækisins að nýta sér ekki vilyrði um lóð þar, heldur láta tímafresti renna út og leita annarra möguleika.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skjóta eigi á öll skip sem leggja tundurdufl Andrea bætti Íslandsmet sitt um 16 sekúndur Open house at the Horticultural College in Reykir Ákvörðun Heklu að nýta ekki vilyrðið Vill fulla aðild að Evrópusambandinu Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Ferðamaðurinn er enn ófundinn Björn Steinar leikur í Notre Dame Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Sviptur ökuréttindum á staðnum Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Þrír hafa verið náðaðir Logi Einarsson fundaði með Apple Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Skjóta eigi á öll skip sem leggja tundurdufl Andrea bætti Íslandsmet sitt um 16 sekúndur Open house at the Horticultural College in Reykir Ákvörðun Heklu að nýta ekki vilyrðið Vill fulla aðild að Evrópusambandinu Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Sviptur ökuréttindum á staðnum Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Þrír hafa verið náðaðir Logi Einarsson fundaði með Apple Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum

Share this article