Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Flókið, erfitt og tímafrekt að þétta í borginni

Read Full Article →

Innlent | mbl | 22.4.2026 | 20:50 Flókið, erfitt og tímafrekt að þétta í borginni Einar segist vita að hægt sé að taka betur utan um stór verkefni eins og það sem Friðbert vill meina að borgin hafi ekki leyst nægilega vel úr hendi. Samsett mynd/mbl.is/Ólafur Árdal/Árni Sæberg/Karítas Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki „Mér finnst þetta augljóst dæmi um hvað það getur verið flókið, erfitt og tímafrekt að þétta í borginni fyrir húsnæðisuppbyggingu,“ segir Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í borginni og fyrrverandi borgarstjóri. Tilefnið er ummæli Friðberts Friðbertssonar, forstjóra Heklu um undarleg vinnubrögð og hringlandahátt sem einkenndu samskipti Heklu við borgina í uppbyggingu Heklureitsins við Laugaveg og flutning Heklu af reitnum. Frétt af mbl.is Borgin fór á mis við nokkra milljarða Hefja þarf uppbyggingu austar „Tímafrek húsnæðisuppbygging er ekki það sem íbúar í Reykjavík þurfa. Við þurfum frekar skilvirka uppbyggingu og þess vegna þurfum við að hefja húsnæðisuppbyggingu á svæðum austar í borginni þar sem er auðveldara að skipuleggja og koma húsnæðisuppbyggingu hratt og vel í gang.“ Einar segir frá því að hann hafi sem borgarstjóri boðið fyrirtækinu lóð sem hafi ekki hentað en sú hafi verið nærri golfvellinum í Grafarholti, steinsnar hjá Bílalandi og fleiri bílasölum. „Þetta var lóð sem við vorum að setja í sölu. Ég sagðist vilja hafa hann í borginni en að hann yrði að bjóða í lóðina en við þurfum auðvitað að setja allt í útboð.“ Frétt af mbl.is „Eins fjarri sannleikanum og hægt er að fara“ Koma þarf í veg fyrir skipulagsmistök Einar segist vita að hægt sé að taka betur utan um stór verkefni eins og það sem Friðbert vill meina að borgin hafi ekki leyst nægilega vel úr hendi. Segist hann hafa rætt við allflesta uppbyggingaraðila um samskipti þeirra við borgina. Hægt sé að eiga í miklu öflugra samtali um verkefnin fyrr í skipulagsferlinu. Þannig verði væntingar um hvernig verkefnin komi til með að verða, samstilltar strax í upphafi. „Svo geta menn hlaupið af stað og byggt. Þetta er of flókið eins og það er í dag og borgin getur bætt sína stjórnsýslu og sína þjónustu við uppbyggingaraðila með samtali og samvinnu þannig að uppbyggingin sé skilvirkari, hraðari og vandaðri.“ Einar segist hafa lagt áherslu á að þeir sem eigi lóðir og uppbyggingaraðilar dragi að borðinu hönnuði, landslagsarkitekta og sérfræðinga hjá skipulagsfulltrúa borgarinnar og strax í upphafi sé ákveðið hvernig uppbyggingin geti litið út. Það sé bæði til þess að geta átt samtal við nærumhverfið, þ.e.a.s. aðra íbúa, og til að tryggja að það sé verið að hanna íbúðir fyrir fólk þar sem eru græn svæði, næg bílastæði og birta inni í íbúðunum til að koma í veg fyrir að gerð verði skipulagsmistök eins og því miður hafi verið raunin í borginni á undanförnum árum. „Það á að vera auðvelt og þægilegt að byggja í Reykjavík. Vegna þess að húsnæðisuppbygging er eitt af mikilvægustu verkefnum borgarinnar. Hvernig við höfum verið að byggja á síðustu kjörtímabilum er ekki að þjóna þörfum markaðarins í dag. Við þurfum minni íbúðir og við þurfum ódýrari, hagkvæmari íbúðir. Þær íbúðir fáum við ekki fram með núverandi skipulagsstefnu Samfylkingarinnar og þeirra flokka sem hafa starfað með henni.“ Frétt af mbl.is Milljarðatugir í Heklureitinn Þau eru ekki hrifin af þessari þjónustu Aðspurður segir Einar ekki gott að heyra hvernig borgin hafi haldið á samskiptunum við Heklu. Hann segir samskiptin endurspegla afstöðu þeirra flokka sem stjórnuðu eða þeirra sem hafa haldið utan um stjórnartaumana í borginni gagnvart einkabílnum. „Þau eru ekki hrifin af því að vera með þessa þjónustu hér í borginni, bílasölur og bílaumboð. Það endurspeglar kannski afstöðu þeirra gagnvart fjölskyldubílnum og þeim sem að nota hann. Þau eru að reyna að breyta þörfum fólks frekar en einfaldlega að mæta þeim. Það er bara vont að sjá á eftir Heklu í annað sveitarfélag. Reykjavík er höfuðborg atvinnulífs og hún á að vera þjónandi gagnvart atvinnulífinu. Við eigum að laða að fyrirtæki frekar en að ýta þeim í burtu.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Valur - Fram, staðan er 31:26 Grindavík - Valur, staðan er 77:80 Björn Steinar leikur í Notre Dame Eyjakonur fögnðu eftir tvíframlengdan leik Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja selja eignir og bjóða fjölbreyttari lausnir Þarf árangursríka útlendingastefnu Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Flugvél hvolfdi við lendingu Nærri tuttugu gráða hiti Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Leit hafin að nýju að ferðamanninum Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Valur - Fram, staðan er 31:26 Grindavík - Valur, staðan er 77:80 Björn Steinar leikur í Notre Dame Eyjakonur fögnðu eftir tvíframlengdan leik Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Björn Steinar leikur í Notre Dame Áhrif á þjónustu Orkuveitunnar gætu orðið veruleg Vilja selja eignir og bjóða fjölbreyttari lausnir Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Flugvél hvolfdi við lendingu Nærri tuttugu gráða hiti Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Leit hafin að nýju að ferðamanninum Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set

Share this article