Svarið við spurningunni sem spurt er í fyrirsögn er: Ekki sérlega margt. Fátt hefur spurst til framboðslista Flokks fólksins í Reykjavík, flokkurinn hefur ekki kynnt oddvita sinn í borginni eða aðra á lista og nokkur óþreyja er meðal flokksmanna sem vilja fara að taka þátt í slagnum um borgina. Reyndar hefur flokkurinn ekki kynnt framboðslista eða oddvita í neinu sveitarfélagi. Flokkur fólksins á aðild að fimm flokka meirihluta undir forystu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra og er með einn fullbrúa í borgarstjórn, Helgu Þórðardóttur sem er formaður skóla- og frístundaráðs. Helga varð oddviti þegar Kolbrún Baldursdóttir tók sæti á Alþingi og hefur tilkynnt að hún vilji ekki leiða listann áfram, en útilokar ekki að taka sæti neðar á lista. Tveir nefndir til sögunnar Ekkert bendir til annars en að Flokkur fólksins hyggi á framboð í borginni. Á samfélagsmiðlum eru auglýsingar þar sem Inga Sæland formaður flokksins hvetur fólk til að skrifa undir meðmælalista fyrir framboð í Reykjavík. Viðmælendur fréttastofu nefna einkum tvo til sögunnar sem komið gætu til greina í oddvitasæti Flokks fólksins í borginni. Annars vegar Einar Sveinbjörn Guðmundsson, sem var í 3. sæti í kosningunum 2022 og er nú varaborgarfulltrúi flokksins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Einar lýst yfir vilja sínum við forystu flokksins um að leiða listann. Hins vegar nefna margir Guðmund Inga Þóroddsson, formann Afstöðu, sem ekki fékk sæti á lista Samfylkingarinnar eftir að hafa fengið 7. sætið í prófkjöri. Í kjölfarið fór hann, ásamt öðrum í Samfylkingarfélaginu Rósinni sem hann veitir forstöðu, í viðræður um samstarf við Vinstrið, framboð undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa. Þeim viðræðum lauk án samkomulags í lok febrúar. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur stjórn flokksins leitað til allmargra um að taka sæti á framboðslista í borginni, ekki hefur fengist staðfest hverjir hafa þegið boðið. Þá mun vera komið nokkuð óþol í flokksmenn, sem vilja gjarnan fara að taka þátt í baráttunni um borgina. Níu oddvitar hafa verið kynntir Allnokkuð er síðan ljóst var hver myndi leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjavík, en það var 6. janúar þegar það lá fyrir að Hildur Björnsdóttir gæfi ein kost á sér og yrði því sjálfkjörinn oddviti. Framboðslisti flokksins var síðan kynntur í heild í lok febrúar. Ljóst var hver yrði oddviti Samfylkingarinnar í borginni 24. janúar þegar Pétur Marteinsson hafði betur gegn Heiðu Björgu Hilmisdóttur í prófkjöri 24. janúar. Framboðslisti flokksins var síðan kynntur í lok febrúar. Okkar borg kynnti þrjá efstu frambjóðendur á lista sínnum 28. janúar. Oddviti framboðsins er Sigfús Aðalsteinsson. Fleiri frambjóðendur hafa ekki verið kynntir. Viðreisn hélt leiðtogaprófkjör 31. janúar, þar bar Björg Magnúsdóttir sigur úr býtum og listi flokksins var síðan kynntur 5. mars. Þann 4. febrúar kynnti Framsóknarflokkurinn frambjóðendur í efstu fjórum sætum í Reykjavík og þar er Einar Þorsteinsson í oddvitasætinu. Listi flokksins í heild var kynntur á tvöföldu kjördæmaþingi flokksins í lok febrúar. Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í Reykjavík, það var tilkynnt 9. febrúar og tólf efstu sætin á lista flokksins svo kynnt í lok febrúar. Sósíalistafélag Reykjavíkur tilkynnti um frambjóðendur í tíu efstu sætum lista flokksins í borginni 10. febrúar. Oddviti sósíalista er Silja Sóley Birgisdóttir og heildarframboðslisti hefur ekki verið kynntur. 23. febrúar lá fyrir að Sanna Magdalena Mörtudóttir, sem á sæti í borgarstjórn fyrir hönd Sósíalistaflokksins, myndi leiða Vinstrið, þar sem boðið er fram í samstarfi við VG. Heildarframboðslisti flokksins var svo kynntur í gær, 21. mars. Píratar í borginni héldu prófkjör 6. mars og þar var Kristinn Jón Ólafsson kjörinn oddviti. Kynntir hafa verið frambjóðendur í efstu tíu sætum lista Pírata. Ljóst er hverjir verða oddvitar níu flokka og framboða í Reykjavík. Frestur til að skila inn framboðum rennur út 10. apríl og ekki er ólíkegt að fleiri gætu bæst í hópinn, auk Flokks fólksins, en fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar 2022 höfðu Reykvíkingar úr 11 framboðum að velja. Sjö þeirra hafa nú kynnt lista sína að hluta til eða í heild og tvö framboðanna eru ný. Er gott eða slæmt að vera seint á ferð? Skiptar skoðanir eru um hvort það gæti verið Flokki fólksins hagstætt að kynna lista sinn seinna en aðrir flokkar og framboð, því gætu fylgt bæði kostir og gallar. Með því að fara sér að engu óðslega gæti skapast eftirvænting eftir því hverjir verði í framboði. Aðrir benda á að kosningabaráttan sé hafin, og reyndar fyrir nokkru síðan; oddvitar flokkanna noti hvert tækifæri til að koma sér og málefnum sinna framboða á framfæri og það gæti verið dýrkeypt að missa af þeirri lest.