Kælismiðjan Frost hagnaðist um 320 milljónir króna í fyrra, samanborið við 225 milljóna hagnað árið áður. Velta nam tæplega 3,3 milljörðum og jókst um 15,9% milli ára. Á árinu keypti Kælismiðjan Frost félögin TG raf ehf. og Mekatronik ehf., en kaupverð eignarhluta í félögum nam 290 milljónum á árinu en bókfært verð eignarhluta var 349 milljónir um áramótin. Kaldbakur og KEA eignir eru stærstu hluthafar félagsins með ríflega 20% hlut hvor. Lykiltölur / Kælismiðjan Frost ehf. 2025 2024 Tekjur 3.280 2.830 Eigið fé 1.420 1.096 Eignir 2.006 1.835 Afkoma 320 225 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .