Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

2,5 milljarða hagnaður

Read Full Article →

Félög í eigu Fenger-fjölskyldunnar, Helgafell og Eignarhaldsfélagið Kolka, högnuðust samanlagt um 2,5 milljarða króna í fyrra. Hagnaður Helgafells jókst talsvert milli ára og nam 1.882 milljónum króna, samanborið við 1.106 milljóna hagnað árið 2024. Mestu munaði um áhrif hlutdeildarfélaga, sem námu 1.926 milljónum. Félagið á 46,48% hlut í S121 ehf., sem er stærsti hluthafi fjárfestingafélagsins Stoða. Helgafell er í eigu Ara, Bjargar og Kristínar Fenger auk Jóns Sigurðssonar, forstjóra Stoða og eiginmanns Bjargar, og Helgu Lilju Gunnarsdóttur, eiginkonu Ara. Eignarhaldsfélagið Kolka er þá í eigu Ara, Bjargar og Kristínar Fenger. Félagið hagnaðist um 574 milljónir króna í fyrra en árið áður nam hagnaðurinn 934 milljónum. Gangvirðisbreyting eignarhluta í félögum var jákvæð um 470 milljónir og arðstekjur námu 150 milljónum. Eignarhaldsfélagið Kolka er móðurfélag Nathan hf., áður Nathan & Olsen, sem á allt hlutafé í Emmessís og Ekrunni, auk þess að eiga 71,4% hlut í Huppuís. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article