Límtré Vírnet hagnaðist um 568 milljónir króna í fyrra, samanborið við 662 milljónir árið 2024. Tekjur móðurfélagsins námu 5,8 milljörðum, sem er smávægileg aukning milli ára. Í ársreikningi segir að verksmiðjur félagsins á Flúðum og Borgarnesi hafi verið nær fullbókaðar allt árið. Árin 2024-2025 nam heildarfjárfesting í vélbúnaði á Flúðum 354 milljónum króna en á árinu 2026 er ráðgert að viðbótarfjárfesting muni nema um 300 milljónum króna. Lykiltölur / Límtré Vírnet ehf. 2025 2024 Tekjur 5.780 5.756 Eigið fé 1.030 588 Eignir 3.128 2.865 Afkoma 568 662 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .