Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tvöfalt meiri hagnaður

Read Full Article →

Samstæða BE fjárfestinga, sem telur Bílabúð Benna, Bílaleiguna Berg, Nesdekk, Vagneignir og Vagnhjólið, hagnaðist um 788 milljónir króna árið 2024 en árið áður nam hagnaðurinn 378 milljónum. Tekjur námu 6,2 milljörðum, sem er aukning um 35,7% milli ára. Eignir samstæðunnar voru bókfærðar á 8,3 milljarða í lok árs 2024 og var eiginfjárhlutfall 84%. Stjórn leggur til að 250 milljónir verði greiddar í arð. Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta Gunnarsdóttir eru eigendur félagsins. Lykiltölur / BE fjárfestingar ehf. 2024 2023 Tekjur 6.192 4.562 Eigið fé 6.962 6.126 Eignir 8.293 7.678 Afkoma 788 378 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article