- What: Innnes financial results released
- Impact: Shareholders and business community
Heildverslunin Innnes hagnaðist um 331 milljón króna í fyrra, samanborið við 250 milljóna hagnað árið 2024. Félagið velti 21,5 milljörðum króna á árinu, sem er aukning um 4,5% frá fyrra ári. Meðalfjöldi stöðugilda á árinu var 204, samanborið við 199 árið áður. Eignir félagsins voru bókfærðar á ríflega 7,6 milljarða króna í lok árs 2025 og eigið fé nam ríflega 2,8 milljörðum. Annað árið í röð er lagt til að 500 milljónir verði greiddar í arð. Innnes er í eigu Dalsnes ehf. Lykiltölur / Innnes ehf. 2025 2024 Tekjur 21.500 20.583 Eigið fé 2.847 3.032 Eignir 7.646 7.673 Afkoma 331 250 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .