Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Viðskiptablaðið

Samfelldur taprekstur frá 2019

  • What: Financial performance of Hreyfill car rental company
  • Impact: No security impact
Read Full Article →

Leigu­bíla­stöðin Hreyfill var rekin með um 24 milljóna króna tapi árið 2024, en árið áður var tapið aðeins meira eða 26 milljónir króna. Leigu­bíla­stöðin hefur tapað 234 milljónum frá árinu 2019 en fé­lagið skilaði síðast hagnaði árið 2018. Rekstrar­tekjur sam­stæðunnar námu 685 milljónum króna árið 2024, samanborið við 652 milljónir árið áður. Rekstrargjöld námu 696 milljónum og jukust um 31 milljón frá fyrra ári. Sam­kvæmt efna­hags­reikningi námu eignir sam­stæðunnar 942 milljónum króna. Eigið fé fé­lagsins í lok ársins nam 429 milljónum sam­kvæmt efna­hags­reikningi og eigið fé sam­stæðunnar í hlut­falli af heildareignum var 46%. Starfandi fé­lags­menn í Hreyfli voru 299 í árs­lok 2024. Samkvæmt skýrslu stjórnar í ársreikningi gengu 18 nýir fé­lagar í félagið það ár. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article