- What: Financial report of a company
- Impact: Business performance update
Jarðboranir högnuðust um ríflega 1,2 milljarða króna í fyrra, samanborið við 961 milljónar hagnað árið áður. Velta samstæðunnar jókst um 12,6% milli ára og fór í fyrsta sinn yfir 10 milljarða króna múrinn á árinu. Um helmingur tekna samstæðunnar koma frá starfsemi hér á landi og hinn helmingurinn kemur frá aljóðlegri starfsemi. Í ársreikningi kemur fram að gert sé ráð fyrir minni umsvifum í ár. Alþjóðlega borfyrirtækið Archer á 60% í félaginu á móti 40% hlut Kaldbaks. Lykiltölur / Jarðboranir hf. 2025 2024 Tekjur 10.143 9.008 Eigið fé 5.890 4.741 Eignir 7.828 7.905 Afkoma 1.221 961 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .