Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bílaleigur auka bílasölu

Read Full Article →

Alls voru nýskráðir 2.200 nýir fólksbílar í janúar og febrúar, sem jafngildir 76% aukningu miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Bílgreinasambandinu. Aukningin milli ára er að stórum hluta drifin áfram af bílaleigum. Samanlagt voru nýskráðir 1.423 nýir bílaleigubílar á tímabilinu, sem er 223% aukning frá sama tímabili í fyrra. Þá eru greinilegar vísbendingar um að hluti nýskráðra fólksbíla það sem af er ári hafi verið fluttur inn fyrir áramót, en þá tóku gildi umtalsverðar breytingar á vörugjaldi á ökutæki. Tengiltvinnbílar svokallaðir (plug-in hybrid) voru vinsælastir meðal nýskráðra fólksbíla með 36,2% hlutdeild og þar á eftir tvinnbílar (hybrid) með 31,6% hlutdeild. Þessir tveir flokkar ökutækja urðu fyrir mestum áhrifum af vörugjaldabreytingunum um áramótin, annars vegar vegna verulegrar hækkunar vörugjalds og hins vegar af breytingum á aðferðafræði við prófun tengiltvinnbíla sem leiðir til hærri skattskyldrar losunar og þar með aukinnar skattbyrði kaupenda. Hreinir rafbílar voru með 22% hlutdeild á fyrstu tveimur mánuðum ársins samkvæmt tölum frá Bílgreinasambandinu. Mest nýskráða einstaka bílategundin það sem af er árinu var Hyundai með samanlagt 459 nýja fólksbíla, sem nemur 21% hlutdeild. Í öðru sæti er Dacia með 361 nýjan fólksbíl skráðan sem er 16% hlutdeild og síðan er Kia í þriðja sæti með 260 nýja fólksbíla og 11% hlutdeild. Þetta er áhugavert í ljósi þessa að Toyota og Kia hafa verið með talsverða yfirburði undanfarin ár og skipt með sér tveimur efstu sætunum. Nánar er fjallað um málið í sérblaði Viðskiptablaðsins, Bílar . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article