Innlent | Morgunblaðið | 20.3.2026 | 14:12 Rýr svör Betri samgangna gagnrýnd Framkvæmdir við borgarlínuna eru sagðar munu skapa umferðaröngþveiti. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Borgarlínan Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Þarf að afturkalla skipulagið Leggja til breytingar á Suðurlandsbraut Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Framkvæmdin kostar 1,2 milljarða » Fleiri tengdar fréttir „Þetta eru stærstu samgönguframkvæmdir Íslandssögunnar og þær fást ekki ræddar á Alþingi. Þær eru nefndar í samgönguáætlun, en sú umfjöllun er fátækleg.Framkvæmdirnar eru ekki fjármagnaðar, þær hafa bein áhrif á íbúa höfuðborgarsvæðisins og reyndar landsmenn alla og í svari Betri samgangna við spurningum fjárlaganefndar um verkefnið, sem ég vil reyndar kalla svarleysi, fást t.a.m. engar upplýsingar um áætlaða arðsemi einstakra framkvæmda,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið. Hann gagnrýnir harðlega meint svör Betri samgangna við spurningum fjárlaganefndar um verkefni samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, sem lutu m.a. að arðsemi verkefna sáttmálans, afköstum fyrirhugaðra samgöngumannvirkja og áhrifum þeirra á umferð á höfuðborgarsvæðinu. Minnisblað frá Betri samgöngum var lagt fram á fundi fjárlaganefndar á miðvikudag og þótti Guðlaugi Þór svörin í rýrari kantinum. Guðlaugur Þór bendir á að því hafi verið haldið fram að arðsemi Borgarlínu verði lítil sem engin. Hann gagnrýnir að verið sé að vinna að verkefninu „undir radar“ og það sé í raun í „blindflugi“, eins og hann kemst að orði. „Ég nefni mál sem snerta íbúana í Reykjavík, sérstaklega þá í efri byggðum borgarinnar að vestanverðu, en þar vísa ég til Keldnalandsins. Þar er ætlunin að hámarka virði landsins sem er slæm nálgun. Það gengur reyndar ekki upp því Reykjavíkurborg hefur gert slíkar ráðstafanir að það mun ekki ganga eftir. Miðað við núverandi áætlun eiga að renna 7,5 milljónir af hverri íbúð til samgöngusáttmálans, en þá eru ótalin álögð gjöld frá Reykjavíkurborg,“ segir Guðlaugur Þór, en hann telur að þau verði yfir 20 milljónir á hverja íbúð. „Það verður búið að leggja hátt í 30 milljónir á hverja íbúð, áður en fyrsta skóflustungan verður tekin,“ segir hann. Guðlaugur Þór segir skipulag Keldnalandsins það versta sem hann hafi nokkru sinni séð. Þar sé gengið á náttúruna, menningarminjar og lífsgæði íbúa í Grafarvogi, svo eitthvað sé nefnt. Hugmyndir ganga ekki upp „Svo eru menn með einhverjar furðuhugmyndir um að fólkið sem á að búa í Keldnahverfinu muni ekki þurfa á bíl að halda. Og ef það er svo lánsamt að eignast íbúð þar sem gert er ráð fyrir einum bíl, þá þarf það að ganga mörg hundruð metra til að komast að sínum bíl sem á að geyma í bílastæðahúsi. Það vita það allir sem hafa eignast börn, að það þarf að halda á ungum börnum út í bíl sem og innkaupapokum eftir verslunarferðir. Þessar hugmyndir ganga ekki upp. Og jafnvel þótt fólk sé ekki með börn, þá hentar þetta skipulag því ekki heldur,“ segir Guðlaugur Þór. Hann nefnir að eldra fólk, sem hyggist minnka við sig kunni að vilja flytja búferlum í Keldnahverfið, eignast minna húsnæði og losa sig við sérbýli sín, þurfi á bíl að halda og jafnvel þótt það gæti án hans verið þá vildi það fá til sín gesti. Engin bílastæði væru hugsuð fyrir þá. „Síðan er ætlunin að ná inn 143 milljörðum með veggjöldum í borginni til þess að fjármagna hluta framkvæmdanna. Í vetur fór ríkisstjórnin þá leið að stórhækka gjöld á umferð með kílómetragjaldi og hækkuðu vörugjöld af bílum um 7,5 milljarða til þess að fjármagna vegakerfið, svo nokkuð sé nefnt. Hækkanirnar eru tugir milljarða á ári á umferðina. Auðvitað þarf að fjármagna vegaframkvæmdir en það er ekki sama hvernig það er gert. Það verður auðvitað að ræða þetta á Alþingi og spurningar mínar lúta að því hvort búið sé að taka einhverjar ákvarðanir og ef Alþingi á ekki að taka þær, hver er þá að gera það?“ segir hann og nefnir að í fjárlaganefnd hafi komið fram að frumvarp um veggjöldin þyrfti að leggja fyrir Alþingi. „Við erum með stofnun sem heitir Betri samgöngur sem kostar hátt í hálfan milljarð á ári og er á fleygiferð að vinna að málum með borgaryfirvöldum sem hafa ekki verið rædd neitt á Alþingi Íslendinga, jafnvel þótt ríkissjóður eigi 99% af Betri samgöngum. Ef þetta verkefni færi í próf yrði því vísað frá og fengi enga einkunn, vegna þess að það er ekki hæft til próftöku. Við erum að horfa á dýrustu samgöngumannvirki Íslandssögunnar sem eiga að vera fjármögnuð af skattgreiðendum með beinum og óbeinum hætti. Sá aðili sem á að bera ábyrgð á að gæta hagsmuna skattgreiðenda er Alþingi sem hefur enn ekki fjallað um þetta verkefni,“ segir Guðlaugur Þór sem kveðst ítrekað hafa óskað eftir því. „Alþingi Íslendinga verður að taka þessa umræðu og almenningur verður að vita hvað er í gangi. Þetta eru peningar almennings. Það er vægast sagt fátt um svör þegar kemur að þessum stórframkvæmdum og Betri samgöngur hafa ekki svarað grundvallarspurningum. Það er andlýðræðislegt. Þetta eru verkefni sem varða alla landsmenn, bæði sem notendur og skattgreiðendur. Almenningur fær ekki að vita neitt og þingið fær ekki að ræða málið. Ég mun beita mér fyrir því að upplýsingar verði veittar sem og að málið verði rætt á Alþingi, sem reyndar er alltaf nauðsynlegt og ekki síst nú, í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga,“ segir hann. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Borgarlínan Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Þarf að afturkalla skipulagið Leggja til breytingar á Suðurlandsbraut Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Framkvæmdin kostar 1,2 milljarða » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Rúður brotnuðu í tugum bíla við Hvalnes Rýr svör Betri samgangna gagnrýnd Ástrós og Adam eiga von á öðru barni Chuck Norris látinn HRingurinn á leið í sitt stærsta ár Umræðan Fíknisjúkir í forgangi Íslenska lífeyriskerfið ein stærsta auðlind Íslands Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Ekki útlit fyrir lífshættulega áverka Leikskólarnir kyndi undir skjánotkuninni Mest lesið Í gær Í vikunni Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Leiguverð þarf að hækka töluvert Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar Samskiptum slitið vegna andstöðu Stormur með dimmum éljum Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Icelandair aflýsir tólf flugferðum Sigríður telur að sér vegið Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Leiguverð þarf að hækka töluvert Nýjast á mbl.is » Rúður brotnuðu í tugum bíla við Hvalnes Rýr svör Betri samgangna gagnrýnd Ástrós og Adam eiga von á öðru barni Chuck Norris látinn HRingurinn á leið í sitt stærsta ár Umræðan Fíknisjúkir í forgangi Íslenska lífeyriskerfið ein stærsta auðlind Íslands Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Ryksprenging í tómum tanki Ræða hættumerki í íslensku hagkerfi Mest lesið Í gær Í vikunni Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Leiguverð þarf að hækka töluvert Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar Samskiptum slitið vegna andstöðu Stormur með dimmum éljum Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Icelandair aflýsir tólf flugferðum Sigríður telur að sér vegið Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Leiguverð þarf að hækka töluvert