Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Ekkert er hafið yfir gagnrýni“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 14.4.2026 | 20:30 „Ekkert er hafið yfir gagnrýni“ Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Borgarlínan „Það verður rautt ljós sílogandi“ 210 milljarðar í sjóinn með Borgarlínu Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks Rýr svör Betri samgangna gagnrýnd Stefnir í öngþveiti að óbreyttu » Fleiri tengdar fréttir Dagmál Þjálfarinn varð vitlaus þegar Fanndís neitaði „Mér var nánast sagt að grjóthalda kjafti“ Íslenska landsliðið var alltaf númer eitt Missti af starfinu sem var búið að lofa honum Grímuklæddir menn með kylfur biðu fyrir utan heimilið » Fleiri tengdar fréttir Stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Betri samgangna eru gestir Dagmála Morgunblaðsins í dag og svara þar vaxandi gagnrýni á þau verkefni sem tengjast Borgarlínu. Það er sá hluti samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins snýr að almenningssamgöngum. Þorsteinn R. Hermannsson sem nýverið tók við sem framkvæmdastjóri félagsins Betri Samgöngur segir að allir sérfræðingar séu sammála um að lausnin, þegar kemur að framtíðarsamgöngum á höfuðborgarsvæðinu sé blanda af valkostum sem þurfi að fjárfesta í. Nýverið var Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor gestur Dagmála og kynnti þar skýrslu sem samtökin Samgöngur fyrir alla - SFA, sendu frá sér í byrjun árs þar sem bent er á ýmsa aðra kosti í tengslum við uppbyggingu samgangna til framtíðar. Niðurstaða SFA er að Borgarlína sé mjög óhagkvæm í núverandi mynd og þörf sé á að endurskoða sáttmálann í heild sinni. Síðast endurskoðaður fyrir 19 mánuðum Þorsteinn bendir á í því samhengi að samgöngusáttmálinn hafi verið endurskoðaður síðast fyrir 19 mánuðum. „Hluti af því sem var gert þar var félagshagfræðileg greining á arðsemi allra verkefna sáttmálans til samans, til 2040. Og í raun og veru sáttmálinn er metinn mjög arðbær fjárfesting. Þetta kostar mjög mikið en innri vextir reiknast 9,2%“ til lengri tíma af þessari fjárfestingu. Þannig að hann er metinn af alþjóðlegum sérfræðingum sem mjög arðbær fjárfesting og gott verkefni. Þar áður var búið að meta fyrstu Borgarlínu með 7% arðsemi í sambærilegri greiningu. Ég held að í raun og veru sé hægt að horfa á þetta með mismunandi gleraugum og gefa sér mismunandi forsendur og annað. En við teljum okkur vera með bestu sérfræðinga og bestu alþjóðlega viðurkenndu aðferðafræði við bæði, að greina tafir á ferðatíma og valkosti til framtíðar og númer tvö að greina arðsemi með alþjóðlega viðurkenndum líkunum sem taka til allra ytri þátta.“ Einhvernveginn svona myndi Suðurlandsbraut líta út í framtíðinni samkvæmt skipulaginu. Þessar hugmyndir hafa sætt gagnrýni. Teikning/Reykjavíkurborg Leiðar Morgunblaðsins síðastliðinn laugardag fjallar að hluta um Borgarlínu og er þá horft til Suðurlandsbrautar. Eftir að hafa lesið upp úr leiðaranum er bent á að þjóðin virðist ekki hafa þolinmæði fyrir þessu. Það þurfi eitthvað að gerast fljótlega. Eyjólfur Árni bendir á að það kunni að vera galli við Íslendinga að þeir séu upp til hópa óþolinmóðir og vilji helst ekki bíða eftir nokkrum sköpuð hlut, segir hann og brosir. Hann leggur á það áherslu að í samgöngusáttmálanum hafi verið unnin mikil og góð undirbúningsvinna. „Það er ekkert hafið yfir gagnrýni. Engin mannanna verk. Hvenær svo sem að þau eru unnin. Það er bara þannig. Ég leyfi mér að fullyrða að þá örugglega eftir að uppfæra og endurskoða þennan samgöngusáttmála á einhverju augnabliki.“ Hann bendir jafnframt á að um sé að ræða langtímaverkefni sem ljúki um 2040 og með slík verkefni sé þekkt að þau geti tekið breytingum. Borgarlína skammaryrði „Einhvern veginn hefur Borgarlína orðið einhvers konar skammaryrði sem ég átta mig ekki alveg á. Eina sem verið er að gera. Bara til að setja þetta í einfaldan búning. Það er verið að koma strætó á sérakreinar sem mest á skipulegan máta. Það er það sem verkefnið gengur út á, varðandi almenningssamgöngurnar.“ En þið ætlið að halda þessu til streitu með Suðurlandsbrautina? „Við ætlum bara að gera það sem eigendurnir fela okkur að gera. Það er bara það sem við gerum.“ svaraði Eyjólfur Árni. Þá ertu að tala um pólitíkina, aftur? „Ég ætla ekki að henda boltanum þangað, alfarið. Bara alls ekki. Við höfum ákveðið verkefni og eigum að nýta fjármunina eins vel og við getum. Og það er algerlega klárt að besta lausnin sem er fyrir umferð á höfuðborgarsvæðinu og samgöngur er að koma sem flestum inn í almenningssamgöngurnar. Það er það besta fyrir þá sem ferðast um á sínum bíl, augljóslega. Einhver blanda af þessu eins og verið er að gera er lausnin. Hvort að við erum nákvæmlega með hárréttu lausnina á þessu augnabliki, ég vil ekkert fullyrða það. Þetta á eftir að þróast alveg klárlega.“ Þorsteinn fór yfir það hvernig ákvarðanataka er í höndum kjörinna fulltrúa og bendir jafnframt á að hvert sveitarfélag þarf að samþykkja skipulag svo hægt sé að ráðast í hina ýmsu þætti samgöngusáttmála. Með fréttinni fylgir hluti af viðtalinu en áskrifendur Morgunblaðsins geta smellt á linkinn hér að neðan til að horfa á þáttinn í heild sinni. Flókið en ekki meitlað í stein Tengdar fréttir Borgarlínan „Það verður rautt ljós sílogandi“ 210 milljarðar í sjóinn með Borgarlínu Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks Rýr svör Betri samgangna gagnrýnd Stefnir í öngþveiti að óbreyttu » Fleiri tengdar fréttir Dagmál Þjálfarinn varð vitlaus þegar Fanndís neitaði „Mér var nánast sagt að grjóthalda kjafti“ Íslenska landsliðið var alltaf númer eitt Missti af starfinu sem var búið að lofa honum Grímuklæddir menn með kylfur biðu fyrir utan heimilið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » KR - Stjarnan, staðan er 72:60 Grindavík vann og fer í undanúrslit FH - Haukar, staðan er 20:18 Liverpool - París SG, staðan er 0:1 Dramtískt jafntefli Elísabetar í Skotlandi Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Búa sig undir tvær myrkar mínútur Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Kristrún staðið sig best en Inga verst Ræða gagnrýni á stórtónleikana Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Borgarstjórn vill banna unnar kjötvörur Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Nýjast á mbl.is » KR - Stjarnan, staðan er 72:60 Grindavík vann og fer í undanúrslit FH - Haukar, staðan er 20:18 Liverpool - París SG, staðan er 0:1 Dramtískt jafntefli Elísabetar í Skotlandi Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Inga: „Mikil eftirsjá að Guðmundi Inga“ Ætla ekki að kæra ákvörðun um meintan eltihrelli Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Borgarstjórn vill banna unnar kjötvörur Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi

Share this article