Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.4.2026 | 22:05 „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Nokkur hiti var í fundargestum á köflum. mbl.is/Karítas Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Margrét Gnarr á lista Miðflokksins Óhjákvæmilegir vaxtarverkir Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu » Fleiri tengdar fréttir Borgarlínan „Ekkert er hafið yfir gagnrýni“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ 210 milljarðar í sjóinn með Borgarlínu Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks Rýr svör Betri samgangna gagnrýnd » Fleiri tengdar fréttir „Hjá mér er þetta bara mjög einfalt. Ef þið ætlið ekki að koma með tilkynningu um að þið ætlið að breyta þessu þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað, þetta er ekki flóknara en það.“ Þetta sagði einn fundarmanna á fundi eigenda fasteigna og rekstrar við Suðurlandsbraut með fulltrúum lista Samfylkingarinnar í borginni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í dag en fundarefnið var lykilkafli fyrsta hluta borgarlínu, sem gert er ráð fyrir að liggi þar um. Aðrir fundarmenn tóku undir og einn þeirra sagði: „Við skulum bara hafa það á hreinu. Þið eruð bara þar núna,“ og vísaði til afarkostana um atkvæðin. Frétt af mbl.is „Ekkert er hafið yfir gagnrýni“ Borgarstjóra hvergi að sjá Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar benti þá að fjórar vikur væru til kosninga og að það gæti komið eitthvað útspil frá framboðinu fram að því. Ásamt Pétri á fundinum voru þau Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir sem skipar 3. sæti listans, Stein Olav Romslo sem skipar 5. sæti, Regína Ásvaldsdóttir sem skipar 7. sæti og Birkir Ingibjartsson sem skipar 8. sæti listans. Athygli vakti að Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, sem skipar 2. sæti listans var ekki á fundinum. Pétur Marteinsson oddviti ræðir við fundarmenn. Að baki hans frá hægri eru þau Regína Ásvaldsdóttir, Birkir Ingibjartsson, Stein Olav Romslo og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. mbl.is/Karítas Leigutakar hyggja á flutninga Gunnar Jónsson, einn eigandi Markarinnar lögmannsstofu, bauð fundargesti velkomna og viðraði áhyggjur rekstraraðila í stuttu máli. Hann sagði markmið fundarins vera að gefa fulltrúum Samfylkingarinnar færi á að útskýra með hvaða hætti Samfylkingin trúi að hún geti tekist á við áhyggjur fasteignaeigenda og rekstraraðila við Suðurlandsbraut. Sagði hann stærsta áhyggjuefnið af öllum vera framkvæmdatíminn og að gatan verði í reynd nánast lokuð á þeim tíma sem framkvæmdir standa yfir, hvort sem það verði fimm ár eða jafnvel þótt þau yrðu þrjú myndi það hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir rekstur við Suðurlandsbraut. Sagði Gunnar m.a. frá því að stór leigutaki hafi sagst myndu fara annað ef takist ekki að finna lausn á borgarlínumálinu. Hyggur hann að margir fleiri muni fara. Pétur sagðist skilja áhyggjur atvinnulífsins við Suðurlandsbraut og sagði samskipti skipta lykilmáli. Sagði Pétur að rekstur á Suðurlandsbraut þurfi að tryggja áfram. Pétur var þó ekki tilbúinn að gefa fundarmönnum sitt vilyrði eða framboðsins um að komið verði til móts við þeirra sjónarmið og áhyggjur. Frétt af mbl.is „Það verður rautt ljós sílogandi“ Á annað hundruð milljarða árstekjur Regína fór í máli sínu m.a. yfir lausnir sem hagsmunaaðilar á Suðurlandsbraut hafa lagt til. Ræddi hún í því sambandi breikkun Suðurlandsbrautar til norðurs í átt að Laugardal og sagðist hafa fengið þau svör frá umhverfissviði Reykjavíkurborgar að mjög mikill kostnaður sé fólginn í að fylla upp í landsvæðið sem sé í miklum halla. Þegar talið barst að kostnaði benti Gunnar á að ef borgin væri svona ákveðin að koma áformum sínum í gegn þá verði hún bara að taka allar eignir á Suðurlandsbraut eignarnámi. Gunnar Jónsson, einn eigandi Markarinnar lögmannsstofu. mbl.is/Karítas Hann spurði þá tveggja spurninga: „Gerðu menn sér grein fyrir að hér vinna 2.400 manns? Þetta eru eins og um fimm álver í fjölda starfsfólks. Gerðu menn sér grein fyrir að hér eru tekjur upp á 166 milljarða króna á ári?“ Gunnar sagði vinnuna ekki hafa verið unna. Ekki hafi verið reiknað inn í myndina verðmæti eignanna sem munu skaðast og því sem þeim fylgja. „Það er ekki búið að bera saman kostnaðinn við að bæta einhverju við og reyna að koma til móts við okkur og verðmætin sem eru í eignunum sem eru til staðar. Eignirnar sjálfar eru sjálfsagt á fimmta tug milljarða króna virði. Þið getið þá rétt ímyndað ykkur hvaða verðmæti eru í fyrirtækjunum sem hér eru.“ Frétt af mbl.is Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Málaferli endi með bótaskyldu borgarinnar Gunnar sagði að ef ráðast eigi í framkvæmdina alla þýði það að allt muni lamast um margra ára skeið og við það verði ekki unað. „Það mun þýða að allt endar í málaferlum og ég fullyrði að borgin yrði dæmd bótaskyld bæði á grundvelli almennra skaðabótareglna og á grundvelli skipulagslaga.“ Það var að heyra á fundarmönnum úr hópi hagsmunaaðila að fólk saknaði stærri orða og digurbarkalegri yfirlýsinga frá fulltrúum Samfylkingarinnar. Þó lýstu margir hverjir ánægju með orð Péturs Marteinssonar um að samráð hafi verið ábótavant í málinu og að hann vilji eiga í ríkara samtali við hagsmunaaðila. Pétur sagði alla eiga rétt á því að á þá sé hlustað og ýjaði að hugsanlegu útspili framboðsins fyrir kosningar. Frétt af mbl.is „Fólk hefur áhyggjur“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Margrét Gnarr á lista Miðflokksins Óhjákvæmilegir vaxtarverkir Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu » Fleiri tengdar fréttir Borgarlínan „Ekkert er hafið yfir gagnrýni“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ 210 milljarðar í sjóinn með Borgarlínu Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks Rýr svör Betri samgangna gagnrýnd » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Leikurinn fer á einni lélegri mínútu Alveg sama því við unnum Kerfið misnotað: „Enginn hér er samkynhneigður“ Þakkar föður sínum árangurinn „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tilraunir til þvingunar dæmdar til að mistakast Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Loftbrú breytt peninganna vegna Kerfið misnotað: „Enginn hér er samkynhneigður“ Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Leikurinn fer á einni lélegri mínútu Alveg sama því við unnum Kerfið misnotað: „Enginn hér er samkynhneigður“ Þakkar föður sínum árangurinn „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Tekjurnar drógust saman um milljarð á einu ári Þríhliða samtal við vinnumarkaðinn komið af stað Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn

Share this article