Innlent | mbl | 31.3.2026 | 13:10 210 milljarðar í sjóinn með Borgarlínu Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Borgarlínan Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks Rýr svör Betri samgangna gagnrýnd Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Þarf að afturkalla skipulagið Leggja til breytingar á Suðurlandsbraut » Fleiri tengdar fréttir Dagmál „Ég fór út í aðstæður sem voru ekki í lagi“ Hálfgert sjokk eftir flutningana frá Íslandi Ríkisstjórn sem krítar út fyrir línurnar Geta ekki sagt „full og varanleg“ „Geturðu sagt mér hvað er að mér?“ » Fleiri tengdar fréttir Sú útfærsla á almannasamgöngum á höfuðborgarsvæðinu sem kölluð hefur verið Borgarlína er „gríðarlega óhagkvæm," samkvæmt útreikningum sérfróðra áhugamanna um samgöngur. Raunar svo óhagkvæm að Ragnar Árnason hagfræðiprófessor segir að verði ráðist í þá framkvæmd séum við að kasta frá okkur 210 milljörðum. Í útreikningum sínum miða sérfræðingarnir við 3,5 prósent ávöxtunarkröfu. „Þetta þýðir það að ef það er hægt að fá ávöxtun upp á 3,5 prósent, raunávöxtun af hverri krónu og það er raunverulega hægt að ná miklu meiri ávöxtun með ýmsum aðgerðum og þar á meðal umferðarframkvæmdum í Reykjavík, að þá samsvarar það að leggja Borgarlínuna því að við hendum 210 milljörðum í sjóinn. Bara hendum þeim frá okkur. Við glötum þeim. Það er eins einfalt og það er,“ segir Ragnar Árnason í Dagmálum Morgunblaðsins í dag. Það eru samtökin SFA, eða Samgöngur fyrir alla og RSE – Rannsóknarmiðstöð um samfélags– og efnahagsmál, sem standa að gerð þeirrar skýrslu sem hér er rædd. Markmiðið með gerð skýrslunnar var að kanna hagkvæmni einstakra samgönguframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir utan Ragnar þá komu Þórarinn Hjaltason, umferðarverkfræðingur og Elías B. Elíasson að gerð skýrslunnar og útreikningum sem birtast í henni. Þörf á að endurskoða Samgöngusáttmála Hluti af niðurstöðum sérfræðingateymisins er að þörf sé á því að skoða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins að fullu. Ragnar bendir á að sáttmálinn innihaldi fjölmargar framkvæmdir og margar af þeim séu mjög hagkvæmar. „Við erum ekkert á móti neinum samgöngusáttmála. Það er framkvæmdaáætlun og slíkar áætlanir geta verið mjög góðar og greitt fyrir því að framkvæma hluti á hagkvæman og ódýran hátt. En við segjum að við þurfum að breyta samsetningunni á þeim framkvæmdum sem eru í þessum sáttmála. Borgarlína sem slík á ekki að vera þarna,“ segir Ragnar Árnason. Hann bendir á að Borgarlína sé óþarfa lúxus sem skilar ekki næstum nægilega miklu miðað við þann mikla stofnkostnað sem hún kallar á og mikinn rekstrarkostnað í framhaldinu. Í skýrslunni voru skoðaðar ólíkar útfærslur af svipuðum toga og Borgarlína. Samkvæmt þeirra rannsóknum og útreikningum þá er hægt að fara mun ódýrari og hagkvæmari leið til að setja upp sambærilegt öflugt hraðvagnakerfi sem skilar nánast því sama í útbreiðslu, tíðni ferða og afkastagetu. Stofnkostnaður við kerfið eins og þeir benda á er aðeins þriðjungur eða jafnvel fjórðungur af þeirri útfærslu sem nú er horft á. Eftir sem áður náist fram nánast sami árangur fyrir notendur. Stóðu gegn framkvæmdum „Borgaryfirvöld, í það minnsta, stóðu beinlínis gegn því að það yrði framkvæmt það sem Vegagerðin stakk upp á til þess að bæta stofnvegakerfið í Reykjavík,“ bendir Ragnar á. Þetta er í samhengi við þá að á tíu árum frá 2012 til 2022 var efnt til átaks sem hafði það að markmiði að fjölga farþegum í strætó og greiddi ríkið til þessa verkefnis milljarð á ári. Niðurstaðan varð að fjölgun farþega varð engin, raunar eilítill samdráttur. Þessir milljarðar segir Ragnar að núvirtir séu samtals í kringum tuttugu milljarða og hafi þetta orðið til þess að ekki var ráðist í þær framkvæmdir sem Vegagerðin taldi nauðsynlegar á þessu tímabili. Ragnar er gestur Dagmála í dag. Með fréttinni fylgir brot úr viðtalinu en áskrifendur geta nálgast þáttinn í heild sinni með því að smella á tengilinn hér að neðan. Borgar línan sig? Tengdar fréttir Borgarlínan Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks Rýr svör Betri samgangna gagnrýnd Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Þarf að afturkalla skipulagið Leggja til breytingar á Suðurlandsbraut » Fleiri tengdar fréttir Dagmál „Ég fór út í aðstæður sem voru ekki í lagi“ Hálfgert sjokk eftir flutningana frá Íslandi Ríkisstjórn sem krítar út fyrir línurnar Geta ekki sagt „full og varanleg“ „Geturðu sagt mér hvað er að mér?“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndefni talið geta hjálpað við rannsókn á slysinu Gerði grín að eyðslu Liverpool Ekki framhald á ESB-viðræðum 210 milljarðar í sjóinn með Borgarlínu Verður næsti stjóri Tottenham Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar Salman Rushdie fyrirgefur ekki Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rukka fyrir vanskráningu á morgun Gistiheimili í húsi ríkislögreglustjóra Lögbann á umferð um einkaveg við Iðu Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Lögreglan lýsir eftir manni Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hélt að verið væri að hrekkja sig Maðurinn fundinn heill á húfi Eldur kviknaði í snjómoksturstæki á Hellisheiði Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Nýjast á mbl.is » Myndefni talið geta hjálpað við rannsókn á slysinu Gerði grín að eyðslu Liverpool Ekki framhald á ESB-viðræðum 210 milljarðar í sjóinn með Borgarlínu Verður næsti stjóri Tottenham Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar Salman Rushdie fyrirgefur ekki Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nærri 30.000 manns skrifað undir Viðsnúningur í rekstri hjá RÚV Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Fyrirhuguð malbikun dugir ekki Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Lögreglan lýsir eftir manni Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hélt að verið væri að hrekkja sig Maðurinn fundinn heill á húfi Eldur kviknaði í snjómoksturstæki á Hellisheiði Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu