Innlent | Morgunblaðið | 10.3.2026 | 8:00 Borgarlína – draumur eða veruleiki? Bjarki Jóhannesson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Fylgismenn borgarlínu segja að andstæðingar hennar finni henni allt til foráttu. Það er ekki rétt, það eru engir andstæðingar borgarlínu, aðeins þeir sem hugsa í raunveruleikanum. Þeir finna henni heldur ekki allt til foráttu, heldur sjá að rökin með henni standast ekki. Förum því í gegnum rökin og metum þau. Fullyrðing borgarlínufólks 1 : Þar sem 12% ferða verða með borgarlínu og almenningssamgöngum tengdum henni mun bílaumferð á höfuðborgarsvæðinu minnka til muna, hávaði og mengun minnka. Svar: Rangt. Þó svo að þessi bjartsýnisspá gengi eftir yrðu samt 88% af bílunum eftir á þrengri götum með meiri töfum, auknum hávaða og aukinni mengun. Fullyrðing 2: Með tilkomu borgarlínunnar munu 12% ferða á höfuðborgarsvæðinu verða með henni og almenningssamgöngum tengdum henni. Svar : Rangt. Forsvarsmenn borgarlínunnar reikna með að fólk gangi allt að 400 metra til að komast í almenningssamgöngur. Ég starfaði í 10 ár við borgarskipulag í stórborginni Malmö í Svíþjóð. Svíar nota almenningssamgöngur mikið, en þar er þó reiknað með að fólk gangi ekki meira enn 200 metra, eða í undantekningartilvikum 300 metra. Hvað þá í íslenskri veðráttu. Upptökusvæði borgarlínunnar er því mun minna en reiknað er með og ferðirnar færri, kannski bara 4% eins og með strætó í dag fyrir allan peninginn. Fullyrðing 3: Fólk tekur þá bara strætó eða hjólar til að komast að biðstöðvum borgarlínunnar. Svar: Hæpið. Ekki er á allra færi að hjóla, og það sem fólki líkar einna verst í almenningssamgöngum eru óþægindi af að skipta um vagna (t.d. úr strætó yfir í borgarlínu). Það þarf líka að gjörbreyta strætisvagnakerfinu, þannig að það þjóni borgarlínunni ásamt því sem það þjónar í dag, sem er flókið mál og dýrt. Fullyrðing 4: Fólk kemst allra sinna ferða með borgarlínunni. Svar : Rangt. Tökum mig sem bý í Grafarvoginum sem dæmi. Segjum að ég ætli að versla í matinn. Ég gæti tekið strætó í Spöngina eða á Ártúnshöfðann. Ef ég vildi hins vegar eiga sama val og í dag, t.d. versla í Costco eða uppáhaldsbúðinni Fjarðarkaupum, þyrfti ég fyrst að taka strætó upp á Ártúnshöfða til að komast í borgarlínuvagn, skipta síðan yfir í annan borgarlínuvagn sem gengi til Hafnarfjarðar, og líklega ganga frá borgarlínustöðinni þar nokkur hundruð metra, þar sem engir strætisvagnar ganga að þessum verslunum, ganga síðan aftur til baka með fulla poka af vörum að borgarlínustöðinni, skipta yfir í borgarlínuvagn upp á Ártúnshöfðann og taka strætó heim. Verra fyrir þau sem eru með börn með í ferðinni. Víkjum þá að samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Fullyrðing 5: Borgarlínan ásamt göngum eða stokk á Miklubraut, Sæbraut og Reykjanesbraut ásamt nýju strætókerfi munu borga sig upp á 50 árum. Svar: Rangt. Í miklum útreikningum samgöngusáttmálans er notuð kostnaðar/ábatagreining eða cost/benefit analysis til að fá þessa útkomu, en gallinn er bara sá að mikið af útreikningunum byggist einungis á ágiskunum. Reikniaðferðin er almennt notuð til að reikna gróða eða tap af einstökum framkvæmdum, þar sem allar breytur þurfa að vera í sömu einingum, yfirleitt peningum. Þetta leysa sáttmálamenn með því að reikna fólki ímynduð laun fyrir tapaðan frítíma vegna tafa í umferðinni og búa til ímyndaðan kostnað af óþægindum af hávaða og mengun. Hér er blandað saman ólíkum hlutum: beinum framkvæmdakostnaði og alls óskyldum huglægum upplifunum reiknuðum til peninga. Að sjálfsögðu er þessi ímyndaði ábati aðeins ágiskanir sem hægt er að hækka eða lækka eftir þörfum til að fá útkomuna til að passa. Allt þetta er svo reiknað til 50 ára, og talið að ævintýrið verði þá að fullu greitt. Þá vantar bara það að þeir sem greiða kostnaðinn í dag verða annaðhvort komnir á elliheimili eða undir græna torfu eftir þessi 50 ár og njóta tæplega hagnaðarins. Ég lærði allt um reikniaðferðir í skipulagi af færustu fræðimönnum á því sviði við meistaranám í Bandaríkjunum. Þar hefðu menn eflaust hrist hausinn ef ég hefði skilað inn útreikningum eins og þessum, þar sem kostnaðar/ábatagreining getur aldrei tekið til allra þátta í skipulagi og fráleitt að hægt sé að nota upplifun fólks til að greiða framkvæmdakostnað. Til eru ýmsar aðrar matsaðferðir sem ég hef kennt við meistaranám í skipulagsfræði hérlendis og erlendis, en of langt mál er að kenna hér. Ég bendi á bókina Evaluation in Environmental Planning eftir Donald M. McAllister fyrir þá sem vilja læra um efnið. Eru þá til aðrar lausnir á umferðarmálunum en borgarlínan? Vissulega, og um þær er ítarlega fjallað og valkostir metnir í nýútkominni skýrslu, „Valkostir við borgarlínu. Hagkvæmni einstakra samgönguframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu“, sem unnin er af almannasamtökunum SFA (Samgöngur fyrir alla) og RSE (Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál). Að lokum: Borgarlínufólk, vaknið áður en draumurinn breytist í martröð. Bjarki Jóhannesson, doktor í skipulagsfræði og fv. lektor. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér 1 blogg um fréttina Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Bloggað um fréttina Hjörvar O Jensson: BORGARLÍNA FYRIRFRAM DAUÐADÆMD ! Nýjast á mbl.is » Drumbarnir frá NATO 49 ára á ströndinni eftir umdeilt uppátæki Snorri um framtíðina: Ekkert í hendi Borgarlína – draumur eða veruleiki? Fékk nótina í skrúfuna Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Hvers vegna þessar blekkingar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Missti stjórn á bílnum vegna hálku Heitir nýjum leiðtoga „óhagganlegum stuðningi“ Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Vilja rannsókn á snjóflóðunum Mest lesið Í gær Í vikunni Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Eric Cantona leikur í kvikmynd á Hólmavík Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Ísland gæti verið komið inn í ESB 2030 Næturvaktin endurvakin í MR Fleiri muni fara á örorku Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Hart sótt að Kristrúnu Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Drumbarnir frá NATO 49 ára á ströndinni eftir umdeilt uppátæki Snorri um framtíðina: Ekkert í hendi Borgarlína – draumur eða veruleiki? Fékk nótina í skrúfuna Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Hvers vegna þessar blekkingar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heitir nýjum leiðtoga „óhagganlegum stuðningi“ Vilja rannsókn á snjóflóðunum Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Björgunarflug fyrir á fimmta tug Íslendinga Mest lesið Í gær Í vikunni Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Eric Cantona leikur í kvikmynd á Hólmavík Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Ísland gæti verið komið inn í ESB 2030 Næturvaktin endurvakin í MR Fleiri muni fara á örorku Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Hart sótt að Kristrúnu Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason