Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.3.2026 | 7:00 Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Kjartan Magnússon Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Í skýrslu um hagkvæmni samgönguframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að svokölluð borgarlína hefur neikvæða arðsemi og er þjóðhagslega óhagkvæm, svo nemur hundruðum milljarða króna. Ég benti á þá staðreynd í grein minni um málið að flestar tæknilegar upplýsingar um borgarlínu eru samdar og settar fram af aðilum sem hafa beinan fjárhagslegan ávinning af því að verkefnið nái fram að ganga. Kostnaður skattgreiðenda er aukaatriði í þeirra huga. Skýrslur slíkra ráðgjafa eru oft áróðurskenndar og byggjast á óskhyggju. Stjórnarformaður Betri samgangna ohf. (BS), Eyjólfur Árni Rafnsson, tók þessa gagnrýni til sín og svaraði í Morgunblaðinu 28. febrúar sl. Segir hann að um alvarlegar ásakanir sé að ræða og að vegið sé að starfsheiðri sérfræðinga, sem starfa að samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Kerfið ver sig Svar stjórnarformanns BS lýsir skilningsleysi á eðli opinberra kerfa og verkefna. Þekkt er hvernig slík kerfi hafa tilhneigingu til að vaxa og þenjast út. Flestar opinberar stofnanir heyja harða baráttu til að afla sífellt meira fjár til starfsemi sinnar úr vösum skattgreiðenda. Stöðugt eru skrifaðar skýrslur með rökstuðningi fyrir auknum fjárveitingum og þar með meiri afskiptum hins opinbera. Slík barátta þýðir ekki að stjórnendur opinberra fyrirtækja stjórnist af annarlegum hvötum. Þeir eru hins vegar sannfærðir um ágæti eigin stofnunar og vilja sjá hana vaxa og dafna. Eins er með stjórnendur borgarlínunnar. Skiljanlegt er að þeir líti jákvæðum augum á þetta risavaxna verkefni, sem þeir hafa beinan fjárhagslegan ávinning af, og vilji sjá það verða að veruleika. Parkinson-lögmálið Rannsakað hefur verið hvernig opinber kerfi hafa tilhneigingu til að framleiða vilhallar upplýsingar til að verja sig og afla frekari fjárveitinga til verkefna sinna. Samkvæmt Parkin ­ son-lögmálinu hafa opinber verkefni tilhneigingu til að þenjast út og verða dýrari. Stöðugt eru sköpuð ný verkefni, m.a. með fundahöldum og skýrsluskrifum, sem hafa ekki síst þann tilgang að sannfæra menn um ágæti verkefnisins og þörf fyrir enn meiri fjárveitingar. Almannavalskenningin James M. Buchanan Nóbelsverðlaunahafi var helsti höfundur svokallaðrar almannavalskenningar. Með henni er aðferðum hagfræð ­ innar beitt til að greina hegðun stjórnmálamanna, embættismanna og kjósenda. Kenningin byggist á því að fólk í hinu opinbera kerfi hagi sér á eigingjarnan hátt, líkt og á markaði. Það vinni frekar að eigin hagsmunum, t.d. auknum fjárveitingum eða endurkjöri, en hagsmunum almennings. Helstu talsmenn almannavalskenningarinnar halda því ekki fram að stjórnendur opinberra kerfa séu einhverjir skúrkar. Þeir eru oft heiðursmenn. En hagsmunir hafa áhrif á fólk og það er mannlegt að stjórnendur stuðli að vexti og viðgangi verkefna sinna með ýmsum aðferðum, t.d. jákvæðum skýrsluskrifum. Það er hins vegar hlutverk stjórnmálamanna að skoða allar hliðar málsins og meta hvort réttlætanlegt sé að hækka skatta og gjöld á almenning um hundruð milljarða króna vegna borgarlínu. Hægt er að fara margfalt ódýrari og mun fljótlegri leið með því að efla núverandi strætisvagnakerfi. Stjórnarformaður BS heldur því einnig fram í grein sinni að af fjölmörgum greinum mínum um borgarlínuna megi ráða að nota eigi það fé, sem myndi sparast við að hætta við borgarlínu, „til að fjárfesta einvörðungu og enn frekar í vegum fyrir einkabíla“. Þessi fullyrðing stjórnarformannsins er ósönn og algerlega úr lausu lofti gripin. Í greinum mínum um borgarlínuna hef ég lagt áherslu á að stórefla eigi almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu með því að efla núverandi strætókerfi með ýmsum hætti. Til dæmis með lagningu forgangsakreina, auknum forgangi vagna á umferðarljósum og umbótum á leiðakerfi. Þá flutti ég sérstaka tillögu í borgarstjórn árið 2023 um aðgerðaáætlun í því skyni að stórefla almenningssamgöngur í borginni. Leitt er að sjá að stjórnarfor ­ maður BS treysti sér ekki til að ræða málin málefnalega heldur kjósi að gera gagnrýnanda borgarlínunnar upp skoðanir með ósannri fullyrðingu sem þessari. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Ósatt, bara lygar“ Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna „Á allt öðru leveli en aðrar menntaskólasýningar“ Myndskeið: Árás á olíuskip í Írak Þorskhnakkar í hvítlaukssmjöri eru krúnudjásn Íslendinga Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Erfið akstursskilyrði víða á heiðum Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þorkell Jóelsson Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Ingibjörg þakkar fyrir sig Borga ekki umferðarsektir Andlát: Felix Ólafsson Vatnsból í hættumat Segist saklaus Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Norðanhríðaveður og gular viðvaranir Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » „Ósatt, bara lygar“ Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna „Á allt öðru leveli en aðrar menntaskólasýningar“ Myndskeið: Árás á olíuskip í Írak Þorskhnakkar í hvítlaukssmjöri eru krúnudjásn Íslendinga Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Segja víðtækar árásir hafnar „Með alla anga úti fyrir okkar fólk“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þorkell Jóelsson Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Ingibjörg þakkar fyrir sig Borga ekki umferðarsektir Andlát: Felix Ólafsson Vatnsból í hættumat Segist saklaus Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Norðanhríðaveður og gular viðvaranir Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Andlát: Árni Árnason

Share this article