- What: U.S. authorities charge individuals for allegedly smuggling Nvidia hardware to China
- Impact: Highlights ongoing tensions around technology exports and national security
Bandarísk yfirvöld hafa ákært þrjá einstaklinga fyrir meint samsæri um að smygla háþróuðum gervigreindarörgjörvum frá Bandaríkjunum til Kína. Á vef BBC segir að sakborningarnir hafi ætlað sér að selja tæknina til kínverskra kaupenda. Samkvæmt bandaríska dómsmálaráðuneytinu nemur verðmæti örgjörvanna fleiri milljörðum dala en einstaklingarnir reyndu að notast við fölsuð skjöl og gervibúnað til að komast fram hjá eftirlitinu. Um er að ræða sérstaka hálfleiðara sem Nvidia framleiðir en þeir eru taldir vera meðal eftirsóttustu gervigreindarörgjörva heims. Þeir eru jafnframt háðir ströngum útflutningstakmörkunum vegna þjóðaröryggis- og utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Sjá einnig Nvidia fær grænt ljós fyrir sölu í Kína Málið er ekki það fyrsta sem kemur á borð bandarískra yfirvalda en tveir kínverskir ríkisborgarar voru handteknir í ágúst í fyrra fyrir að hafa ólöglega flutt fleiri milljóna dala virði af örgjörvum frá Nvidia til Kína.