- What: Australia and EU reach free trade agreement after 8 years
- Impact: Trade and economic relations between Australia and EU
Ástralía og Evrópusambandið hafa náð samkomulagi um víðtækan fríverslunarsamning eftir átta ára samningsviðræður. Á vef BBC segir að samningurinn, sem var undirritaður í dag, sé metinn á tæpa 867 milljarða króna. Forsætisráðherra Ástralíu, Anthony Albanese, og forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen, lýstu samningnum sem gagnkvæmum sigri fyrir báða aðila. Samningurinn felur meðal annars í sér afnám á nær öllum viðskiptatollum og munu báðir aðilar auka samstarf á sviði varnarmála og mikilvægra hráefna. Allir tollar ESB verða þá felldir niður á ástralskar landbúnaðarafurðir á borð við vín, ávexti, grænmeti, ólífuolíu, sjávarafurðir og flestar mjólkur- og kornvörur. Sjá einnig ESB hyggst gera fríverslunarsamning við S-Ameriku Að sögn ástralskra stjórnvalda mun samningurinn spara áströlskum vínframleiðendum um 3,2 milljarða króna. Neytendur í Ástralíu munu sömuleiðis njóta lægra verðs á evrópskum vörum eins og sterku áfengi, kexi, súkkulaði og pasta. Ursula von der Leyen segir að samningurinn leggi áherslu á sameiginlegt viðnámsþol og bætti við að traust skipti meira máli en viðskipti í heimi þar sem stórveldi beita tollum og þrýstingi til að nýta sér veikleika í aðfangakeðjum.