Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti í dag að það hyggist fullgilda fríverslunarsamning ESB við fjögur ríki í Suður-Ameríku. Samningurinn mun skapa eitt stærsta fríverslunarsvæði í heimi með yfir 700 milljónir íbúa. Á vef New York Times segir að Evrópusambandið muni innleiða samninginn þrátt fyrir lagalega andstöðu en löggjafarþing ESB vísaði samningnum til Evrópudómstólsins í síðasta mánuði. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði hins vegar í dag að bráðabirgðasamningurinn myndi ná til Brasilíu, Argentínu, Paragvæ og Úrúgvæ. Hún lýsti samkomulaginu með einum mikilvægasta viðskiptasamningi á fyrri hluta þessarar aldar. Sjá einnig Indland að lækka tolla á evrópska bíla Evrópusambandið hefur undanfarin misseri leitast við að auka fjölbreytni í viðskiptasamböndum sínum vegna vaxandi óvissu frá Bandaríkjunum og Kína. ESB undirritaði til að mynda viðskiptasamning við Indland í janúar eftir næstum tveggja áratuga samningaviðræður.