Tom Wisdom, framkvæmdastjóri ástralska fjölskylduvínfyrirtækisins Plantagent Wines, segir að nýundirritaði fríverslunarsamningurinn milli Ástralíu og Evrópusambandsins bjóði upp á bæði kosti og galla, sérstaklega fyrir ástralska vínframleiðendur. Ástralía og Evrópusambandið undirrituðu víðtækan fríverslunarsamning þann 24. mars sl. en samningurinn er metinn á 867 milljarða króna. Samningurinn felur meðal annars í sér afnám á nær öllum viðskiptatollum og munu báðir aðilar auka samstarf á sviði varnarmála og mikilvægra hráefna. Allir tollar ESB verða þá felldir niður á ástralskar landbúnaðarafurðir á borð við vín, ávexti, grænmeti, ólífuolíu, sjávarafurðir og flestar mjólkur- og kornvörur. „Ég er hlynntur opnum mörkuðum því markaðsaðgengi er mikilvægt fyrir aðgengi að nýjum tækifærum.“ Tom segir í samtali við Viðskiptablaðið að samningurinn veiti áströlskum vínframleiðendum aukið forskot á Evrópumarkaði en að sögn ástralskra stjórnvalda mun samningurinn spara áströlskum vínframleiðendum um 3,2 milljarða króna. Sjá einnig Ástralir semja við ESB um fríverslun „Ég er almennt hlynntur opnum mörkuðum því markaðsaðgengi er mikilvægt fyrir aðgengi að nýjum tækifærum. Innflutningur á evrópskum víntegundum, til dæmis kampavíni, til Ástralíu er hins vegar mjög mikill og myndast þá að sjálfsögðu ákveðin ógn. Ívilnanirnar sem ástralskir vínframleiðendur fá með samningnum koma þó jafn mikið til móts við okkur.“ Hann bætir við að Ástralir séu jafnframt með betra aðgengi að öðrum mörkuðum í Asíu og sökum átaka í Mið-Austurlöndum sé Evrópa ekki endilega mest aðlaðandi markaður þegar kemur að flutningskostnaði og öðrum þáttum. „Samningurinn leyfir okkur líka að halda áfram að nota vörumerkjaheiti eins og Prosecco á innlendum markaði. Ástralía er náttúrulega mjög ung þjóð og margir innflytjendur frá Evrópu sem fluttu hingað á sínum tíma héldu áfram að nota vörumerkjaheitin frá móðurlandinu, þannig að sá þáttur er vissulega mjög jákvæður fyrir Ástralíu.“ Einangruð og hágæða vínekra Plantagent Wines hefur verið í eigu fjölskyldu Tom síðan 1992 en hann tók sjálfur við sem framkvæmdastjóri árið 2017. Vínekran er staðsett í fimm klukkutíma keyrslu sunnan við Perth, skammt frá Stirling Range-þjóðgarðinum. Vínekrur Plantagent Wines eru staðsettar á sérstaklega einangruðu svæði. © Skjáskot (Skjáskot) „Við erum staðsett á mjög einangruðu svæði en Perth er einangraðasta borg heims og við erum í enn meiri fjarlægð frá þeirri borg. Það flækir auðvitað vöruflutning og fleira en á sama tíma getum við boðið upp á mjög óspillta og tæra vöru.“ Sjá einnig Ástralir ekki lengur háðir kínverska markaðnum Víntegundir Plantagent eru ræktaðar við rætur Barker-fjallsins í mölkenndum leirjarðvegi og að sögn eigenda þurfa þrúgurnar sjálfar lítil inngrip til að njóta sín í náttúrunni. Flaggskip vínekrunnar, Icon-vínin, heiðra bæði stofnanda Plantagent, Tony Smith, og Lionel Samson, forföður Tom sem stofnaði elsta fjölskyldufyrirtæki í Vestur-Ástralíu árið 1829. „Það er heil kynslóð af fólki sem kann að meta gott vín og þó svo að fólk á heimsvísu sé að drekka minna magn af víni þá eru fjölmargir á aldrinum 55 til 75 ára sem eiga mikinn pening og eru mjög hrifnir af hágæða víni. Ef þú ert tilbúinn að fara út fyrir rammann og skoða markaðinn í heild sinni þá eru fjölmörg tækifæri fyrir vínframleiðendur eins og okkur.“