Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ásta Dís tekur við við­skipta­fræði­deild HÍ

Read Full Article →

Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, hefur verið kjörin forseti Viðskiptafræðideildar og tekur við embættinu 1. apríl næstkomandi. Hún tekur við af Margréti Sigrúnu Sigurðardóttur, sem hverfur til starfa sem kennslustjóri Háskóla Íslands. Ásta Dís hefur undanfarin fimm ár stýrt MBA-náminu við Háskóla Íslands og lagt áherslu á að tengja kennslu markvisst við raunveruleg viðfangsefni í atvinnulífinu. Þá hefur hún meðal annars komið á starfsþjálfun innan Viðskiptafræðideildar sem nær nú til yfir 70 fyrirtækja og stofnana, þar sem hundruð nemenda hefur tekið þátt og margir fengið draumastarfið í kjölfarið. Ásta Dís hefur ritað fjölda vísindagreina og bóka á sviði stjórnun, jafnréttis og sjávarútvegs og leiðir rannsóknir á jöfnum tækifærum kynja til efnahagslegrar þátttöku. Árið 2025 stofnaði Ásta Dís ásamt fleirum Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi við Háskóla Íslands. „Viðskiptafræðideild HÍ hefur á að skipa öflugu og reynslumiklu fræðafólki og byggir kennsla á sterkum fræðilegum grunni samhliða nánum tengslum við atvinnulífið,“ segir í tilknningu. „Nemendur vinna að raunverkefnum fyrir fyrirtæki, fara í vettvangsheimsóknir og fá aðgang að fjölbreyttum viðfangsefnum sem endurspegla það sem gerist í íslensku viðskiptalífi hverju sinni. Þá taka fjölmargir stjórnendur og sérfræðingar úr atvinnulífinu virkan þátt í kennslu deildarinnar og miðla reynslu sinni til nemenda.“ Deildin á í virku rannsóknasamstarfi við erlenda háskóla og fræðafólk og tengir rannsóknir sínar við viðfangsefni sem skipta atvinnulífið máli.

Share this article