Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Samfylking í aftursætinu og Inga Sæland í skottinu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.3.2026 | 13:35 Samfylking í aftursætinu og Inga Sæland í skottinu Guðrún Hafsteinsdóttir við flutning stefnuræðunnar. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Kristrún kýs „já“ í ágúst Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Undirrituðu yfirlýsingu um öryggis- og varnarmál Aðhaldsstig aukið verulega » Fleiri tengdar fréttir „Ákvarðanir um Ísland á að taka á Íslandi. Við segjum nei við ESB.“ Þetta sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í ræðu sinni á flokksráðsþingi flokksins sem fram fór á Hilton Reykjavik Nordica hótel í dag. Hún sagði aðildarviðræður ekki vera hlutlaust samtal til að „sjá hvað er í pakkanum“ heldur leið að einni niðurstöðu, fullri aðild að Evrópusambandinu. Frétt af mbl.is Hitnar í kolunum á Alþingi Landbúnaður yrði á bjargbrúninni „Með ESB-aðild féllu fiskimiðin undir sameiginlega fiskveiðistefnu sambandsins og ákvarðanir um kvóta og stjórnun fiskistofna yrðu hluti af sameiginlegri ákvörðunartöku innan ESB,“ sagði Guðrún. „Ísland myndi missa sjálfstæða viðskipta- og tollastefnu við aðild að ESB. Landið færi inn í sameiginlegt tollabandalag og viðskiptastefnu sambandsins. Okkar frábæri landbúnaður yrði þá á bjargbrúninni,“ bætti hún svo við. Ísland gæti ekki lengur haft sína eigin tollastefnu eða gert fríverslunarsamninga við önnur ríki. Slíkir samningar yrðu gerðir af ESB fyrir okkar hönd. „Ísland yrði í aftursætinu. Rétt eins og Samfylkingin er í aftursætinu hjá Viðreisn með Ingu Sæland í skottinu!“ Frétt af mbl.is Kristrún kýs „já“ í ágúst Kristrún í felum Þá segir hún Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vera í felum og á hraðhlaupum undan eigin loforðum um að kljúfa ekki þjóðina. „Og utanríkisráðherra er í hverjum mánuði á biðilsbuxunum í Brussel. Hún hefur sakað andstæðinga sína um hræðslu og heimóttarskap og sagt að menn eigi einfaldlega að ganga í Evrópusambandið með „kassann út“ eins og hún orðar það,“ sagði Guðrún um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi. Ef utanríkisráðherra heldur áfram á þessari braut gæti farið fyrir henni eins og froskinum í dæmisögunni sem ætlaði sér að verða jafnstór og uxinn með því að þenja sig út. Við vitum hvernig sú saga endaði. Froskurinn sprakk í tætlur!“ Guðrún segir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vera í felum og á hraðhlaupum undan eigin loforðum um að kljúfa ekki þjóðina. mbl.is/Anton Brink Frétt af mbl.is Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Vill endurvekja grunngildin Guðrún talaði einnig um komandi sveitastjórnarkosningar sem fram fara um miðjan maí. „Á síðustu vikum höfum við stillt saman strengi okkar, safnað liði og undirbúið okkur vel. Það sést nú skýrt að Sjálfstæðisflokkurinn mætir sameinaður og öflugur til þessara kosninga.“ Hún segist taka eftir ákalli um að endurvekja grunngildi flokksins. Fyrir miðju myndar er Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins í borginni. mbl.is/Anton Brink „Þeir [flokksmenn] vilja að við tölum skýrt fyrir einstaklingsfrelsi og framtaki, ráðdeild í meðferð opinberra fjármuna, lægri sköttum og lækkun ríkisútgjalda.“ Hún sagði flokksmenn jafnframt leggja áherslu á að samfélag sem byggi á frelsi þurfi líka að sýna ábyrgð gagnvart þeim sem minna mega sín. „Þetta er kjarninn í sjálfstæðisstefnunni: frelsi einstaklingsins, frumkvæði og framtakssemi — en um leið mannúð og umhyggja fyrir þeim sem þurfa á stuðningi samfélagsins að halda,“ sagði Guðrún. „Saga Íslands sýnir að þegar Sjálfstæðisflokkurinn er sterkur og stendur fast á stefnu sinni finnur þjóðin jafnan réttu leiðina áfram,“ bætti hún við. Frétt af mbl.is Uppgjöf í viðureigninni við verðbólgu og vexti Misstu sjónar um stund Guðrún sagðist gera sér grein fyrir þeirri óánægju sem ríkti meðal Sjálfstæðismanna vegna samstarfs flokksins við Vinstri Græna á árunum 2017 til 2021. Sú óánægja hafi birst skýrt í fylgistapi flokksins í kosningunum 2024. Hún sagði flokkinn hafa fjarlægst það sem áður gerði hann sigursælan og sterkan. Hann hafi misst sjónar á því fyrir hvað hann standi. „Ég vil að flokkur frelsis, framtaks og ábyrgðar verði á ný skýrasti valkostur þeirra sem vilja sterkara Ísland.“ mbl.is/Anton Brink Lofar lægri vöxtum og verðbólgu Þá nefndi hún einnig mikilvægi þess að rækta samband Íslands við Bandaríkin, okkar helstu vinaþjóð. „Það verður ekki sagt um þessa ríkisstjórn sem hefur með ákvörðunum sínum og yfirlýsingum grafið undan okkar trausta sambandi við Washington. Það sést best á því að í Washington ríkti nýverið algjört áhugaleysi um komu utanríkisráðherra Íslands. Það er áhyggjuefni á óvissutímum.“ Hún nefndi einnig þá stöðu sem komin er upp í efnahagsmálum hér á landi. Jafnframt lofar hún því að flokkurinn muni lækka vexti og verðbólgu þegar hann leiðir ríkisstjórn á ný. „Við munum hætta að eyða um efni fram, lækka skatta og leysa fjötrana af atvinnulífinu og fjölskyldum landsins. Þetta er engin leyniuppskrift, hún hefur virkað áður og hún mun virka aftur.“ Frétt af mbl.is Þorgerður: Bandaríkin greinilega ekki unnendur ESB Framtíðin er okkar Þá segir hún flokkinn vilja fleiri tækifæri fyrir fjölskyldur, ungt fólk og atvinnulífið í landinu. „Við Sjálfstæðismenn höfum stefnuna. Við höfum reynsluna og við höfum kjarkinn til að framkvæma. Í vor og í næstu alþingiskosningum munum við endurheimta forystuna. Framtíðin er björt, framtíðin er okkar og framtíðin er íslensk,“ segir hún að lokum. mbl.is/Anton Brink Tengdar fréttir Ísland og ESB Kristrún kýs „já“ í ágúst Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Undirrituðu yfirlýsingu um öryggis- og varnarmál Aðhaldsstig aukið verulega » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fær tækifæri til að bæta upp fyrir hörmulega frammistöðu Samfylking í aftursætinu og Inga Sæland í skottinu Sjálfstæðismenn minntust Davíðs Oddssonar Vildu drekka kaffi með Gimpinu Gerðu misheppnaða árás á Diego Garcia-herstöðina Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Búið að opna heiðina Vill gera glæpamönnum lífið leitt Kristrún kýs „já“ í ágúst Byggingin hönnuð til að gefa eftir Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Gestir kvarta undan ólykt Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Vill gera glæpamönnum lífið leitt Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Næsta lægð nálgast síðdegis Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Sorpa lokar á Sævarhöfða Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Nýjast á mbl.is » Fær tækifæri til að bæta upp fyrir hörmulega frammistöðu Samfylking í aftursætinu og Inga Sæland í skottinu Sjálfstæðismenn minntust Davíðs Oddssonar Vildu drekka kaffi með Gimpinu Gerðu misheppnaða árás á Diego Garcia-herstöðina Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Holtavörðuheiði enn lokuð Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Ryksprenging í tómum tanki Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Gestir kvarta undan ólykt Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Vill gera glæpamönnum lífið leitt Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Næsta lægð nálgast síðdegis Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Sorpa lokar á Sævarhöfða Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum

Share this article