Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Inn­ganga í ESB „getur ein­göngu haft neikvæð áhrif“

Read Full Article →

Hermann S. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kemi, gagnrýnir harðlega áhuga ríkisstjórnarinnar á að ganga inn í Evrópusambandið. Í umsögn um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að ESB segir Hermann að innganga í ESB yrði „eitt mesta tjón sem íslensk þjóð gæti skapað sér horft til lengri tíma“. Gríðarlegir fjármunir muni streyma úr vösum skattgreiðenda Hermann, sem er fyrrverandi forstjóri N1, segir að íslenskt samfélag hafi vaxið og dafnað gríðarlega síðastliðin 15 ár. Hagur fyrirtækja og fjölskyldna hafi batnað jafnt og þétt allan tímann. Kaupmáttur hafi vaxið meira en annars staðar og sé í dag í fremstu röð í heiminum. Þá hafi Íslendingar byggt upp lífeyrisskerfi í fremstu röð sem tryggi landsmönnum lífeyri eins langt og augað eygir. „Aðrar þjóðir hafa ekki lagt til hliðar í sama mæli og það mun verða upplausn í sumum þjóðfélögum í ESB vegna þessa á næsta áratug. Innganga Íslands í ESB getur eingöngu haft neikvæð áhrif á okkar samfélag. Of mikil regluvæðing, of mikil miðstýring og mjög dýrt stjórnkerfi mun draga kraft úr öllum aðildarþjóðum til lengri tíma litið. Gríðarlegir fjármunir munu streyma úr vösum íslenskra skattgreiðenda til að bæta líf annara íbúa í ESB og þannig veikja okkar samfélag og innviði.“ „Tollabandalag gamalla þjóða sem eru hnignandi samfélög” Hann telur mun vænlegri stefnu fyrir Ísland að einblína á að byggja upp atvinnulífið í gegnum orkuöflun og menntun í raungreinum. Að sama skapi ætti að bjóða erlendum fyrirtækjum hvata til að opna starfsstöðvar á Íslandi sem draga til sín vel borgandi störf og mikið menntað starfsfólk. „Tækifærin á heimsvísu eru miklu meira spennandi en tollabandalag gamalla þjóða sem eru hnignandi samfélög með gríðarlegar skuldir og ófjármögnuð lífeyris loforð.“ Hann telur Ísland vera eitt mest spennandi viðskiptaland á Norðurslóðum. „Höldum öllum dyrum opnum og lokum ekki landið á bakvið tollmúra þeirra sem eru að dragast aftur úr öðrum.“ Í umsögninni kemur hann einnig á framfæri skoðun sinni um að sú spurning sem ríkisstjórnin hyggst leggja fram í þjóðaratkvæðagreiðslunni – „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ – sé bæði röng og villandi. Eðlilegast væri að spyrja hvort að kjósendur vilji sækja um aðild að ESB.

Share this article