Þung færð er víða um land eftir hríðarveðrið síðustu daga. Búið er að opna Holtavörðuheiði en hún var lokuð í nótt. Öxnadalsheiði er einnig opin en í snjóþekju og skafrenning Ófært er um Dynjandisheiði og Steingrímsfjarðarheiði á Vestfjörðum og auk þess er verið að kanna ástand vega og færð víða á Norðvesturhluta landsins og verða upplýsingar uppfærðar á vef Vegagerðarinnar; umferðin.is. Innanlands- og millilandaflug er að mestu á áætlun. Gular viðvaranir taka gildi í nótt fyrir Austurland að Glettingi, Austfirði og Suðausturland vegna hríðar. Snarpt hviðuveður í fyrramálið Með nýrri lægð fer veður versnandi í kvöld suðaustan- og austanlands, að sögn Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings Vegagerðarinnar. Austan- og norðaustantil má reikna með stórhríð í nótt og fyrramálið. Með ströndinni suðaustanlands og á Autfjörðum nær hins vegar að hlána. Í fyrramálið gerir síðan snarpt hviðuveður í norðvestanátt sunnan undir Vatnajökli og á sunnanverðum Austfjörðum. 13:23 Fréttin hefur verið uppfærð.