Innlent | mbl | 21.3.2026 | 14:45 Áróður „Crybully-ríkisstjórnarinnar“ Sigmundur segir ríkisstjórnina reyna að koma Íslandi inn í ESB með góðu eða illu. Samsett mynd/Karítas Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Kristrún kýs „já“ í ágúst Samfylking í aftursætinu og Inga Sæland í skottinu Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Undirrituðu yfirlýsingu um öryggis- og varnarmál » Fleiri tengdar fréttir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur reynir að keyra áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) í gegn með umbúðamennsku og áróðri að sögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins. Þetta segir hann í kjölfar þess að greint var frá því að Viðreisn leiti nú eftir sjálfboðaliðum til að taka þátt í kosningabaráttu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Vert er að nefna að Alþingi hefur enn ekki samþykkt tillögu um atkvæðagreiðsluna. „Þetta er bara áminning um að þetta er allt á sömu bókina og er lært hjá þeim. Þau eru bara að reka sín áform um að reyna að koma Íslendingum inn í ESB með góðu eða illu,“ segir Sigmundur í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Eintóm sýndarmennska Hann segir þetta allt vera eintóma sýndarmennsku þar sem farið hefur verið fram hjá þjóðinni og henni ekki treyst fyrir upplýsingum um málið. Það eigi einfaldlega að koma okkur inn í ESB eitt skref í einu þar til ekki verður aftur snúið. Sigmundur segist ekki stefna á að safna saman sjálfboðaliðum til að breiða út erindi Miðflokksins. Hann, ólíkt ríkisstjórninni, treysti þjóðinni til að beita sér fyrir því að leita að sannleikanum um málið og koma honum á framfæri. „Ég held að við þurfum ekkert sem stjórnmálaflokkur að skipuleggja það eins og Viðreisn ætlar sér. Ég held að það verði þarna fólk úti sem að muni grípa til varna gegn þessum tilburðum eins flokks á Alþingi til að blekkja þjóðina inn í Evrópusambandið.“ Frétt af mbl.is Samfylking í aftursætinu og Inga Sæland í skottinu Ríkisstjórnin óttist umræðuna Hann furðar sig jafnframt á orðum Kristrúnar sem hún lét falla fyrr í dag um að ágætt væri að atkvæðagreiðsla fari fram þegar þingið sé ekki starfandi. Málið þurfi að vera hafið yfir flokkspólitík. „Það er hluti af blekkingunni og ástæðuna tel ég vera að þær óttist að of mikil umræða í þinginu geti fengið fólk til þess að hugsa sinn gang um hvað er raunverulega að gerast,“ segir hann. Frétt af mbl.is Kristrún kýs „já“ í ágúst Þær hrekkja og plata Þá brást Sigmundur við orðum Kristrúnar um að Miðflokkurinn væri „á harðahlaupum á eftir því sem dreifist hraðast á TikTok þann daginn, eða því sem fær flesta þumla á Facebook, og keppist við að úthúða jafnaðarfólki.“ „Þetta er það sem þær beita töluvert þessar valkyrjur, að vera crybully ,“ segir Sigmundur en orðið crybully kemur úr ensku og merkir einhvern sem beitir sífellt einelti eða áreitni en lýsir sér samtímis sem fórnarlambi, sérstaklega þegar hann stendur frammi fyrir afleiðingum gjörða sinna. „Þær gera eitt og annað af sér og hrekkja og plata en þykjast svo vera fórnarlömbin þegar bent er á það,“ segir Sigmundur Davíð. Frétt af mbl.is Hitnar í kolunum á Alþingi Tengdar fréttir Ísland og ESB Kristrún kýs „já“ í ágúst Samfylking í aftursætinu og Inga Sæland í skottinu Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Undirrituðu yfirlýsingu um öryggis- og varnarmál » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gruna Musk um að hafa ýtt undir deilur um Grok Áróður „Crybully-ríkisstjórnarinnar“ Slakur seinni hálfleikur skilaði þungu tapi gegn Brighton Þotan fór tvíveigis norður í dag Lúxussnekkja á Pollinum Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Ekki útlit fyrir lífshættulega áverka Öllu millilandaflugi aflýst þar til síðdegis Búið að opna heiðina Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Vill gera glæpamönnum lífið leitt Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Næsta lægð nálgast síðdegis Sorpa lokar á Sævarhöfða Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Nýjast á mbl.is » Gruna Musk um að hafa ýtt undir deilur um Grok Áróður „Crybully-ríkisstjórnarinnar“ Slakur seinni hálfleikur skilaði þungu tapi gegn Brighton Þotan fór tvíveigis norður í dag Lúxussnekkja á Pollinum Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Öllu millilandaflugi aflýst þar til síðdegis Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Vill gera glæpamönnum lífið leitt Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Næsta lægð nálgast síðdegis Sorpa lokar á Sævarhöfða Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum