Innlent | mbl | 20.3.2026 | 21:05 Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Úr skráningaskjalinu. Skjáskot Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Undirrituðu yfirlýsingu um öryggis- og varnarmál Aðhaldsstig aukið verulega Guðrún vill fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni Fyrri umræðu um ESB-tillögu lokið » Fleiri tengdar fréttir Viðreisn hefur hafið leit að sjálfboðaliðum til að taka þátt í kosningabaráttu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Alþingi hefur enn ekki samþykkt tillögu um atkvæðagreiðsluna. Tölvupóstur var sendur á alla félagsmenn Viðreisnar í dag þar sem var að finna skráningarskjal fyrir sjálfboðaliða. „Já-ið fæst með samstilltu átaki, þúsund handtökum og maður á mann samtali. Við leitum því að áhugasömu fólki sem vill leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir jákvæðu svari,“ segir í skjalinu. Á meðal þess sem sjálfboðaliðar geta gert er að skipuleggja viðburði, deila efni á samfélagsmiðlum, fylgjast með umræðu á samfélagsmiðlum, taka þátt í umræðu á samfélagsmiðlum og safna fjármagni, svo eitthvað sé nefnt. Ekki enn samþykkt á Alþingi Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, segir í samtali við mbl.is að Viðreisn sé „Evrópusambands-já“ flokkur og pósturinn hafi verið sendur út svo félagsmenn sem hefðu áhuga að taka þátt í baráttunni hefðu kost á því. Alþingi hefur þó ekki enn afgreitt tillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin. Fyrri umræðu lauk á þriðjudag og utanríkismálanefnd tekur málið til umfjöllunar áður en seinni umræða um málið hefst. Gert er ráð fyrir að það verði eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Lagt er til að atkvæðagreiðslan verði haldin 29. ágúst. Leiðrétti á samfélagsmiðlum Finnst ykkur ekkert of snemmt að fara að safna sjálfboðaliðum í ljósi þess að það er ekki búið að samþykkja atkvæðagreiðsluna á Alþingi? „Heitir þetta ekki bara að vera tilbúin? Ég á ekki von á því að þingið muni hafna þessu en ef það verður þá verður ekkert af þessu sjálfboðaliðastarfi,“ segir Svanborg. Spurð hvað felist í því að „fylgjast með umræðu á samfélagsmiðlum“ eins og sjálfboðaliðum gefst kostur á að gera segir Svanborg að það sé meðal annars að leiðrétta ef rangar upplýsingar verði í dreifingu á miðlunum. Allt fjármagn sem sjálfboðaliðarnir munu koma til með að safna verður gefið upp á ársreikningi flokksins, í samræmi við lög um fjármál stjórnmálaflokka, að sögn Svanborgar. Framlögin geta ýmist verið frá einstaklingum eða fyrirtækjum. Frétt af mbl.is Fyrri umræðu um ESB-tillögu lokið Skjáskot Skjáskot Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Undirrituðu yfirlýsingu um öryggis- og varnarmál Aðhaldsstig aukið verulega Guðrún vill fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni Fyrri umræðu um ESB-tillögu lokið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bournemouth - Man. Utd, staðan er 1:1 Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu „Við soguðumst inn í þennan heim“ Stjörnumenn setja pressu á Tindastól Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Umræðan Fíknisjúkir í forgangi Reykjavík þarf nýja samgöngustefnu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Eru að leggja Íran í rúst: Veit ekki hver stjórnar Ryksprenging í tómum tanki Leikskólarnir kyndi undir skjánotkuninni Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Icelandair aflýsir tólf flugferðum Sigríður telur að sér vegið Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Nýjast á mbl.is » Bournemouth - Man. Utd, staðan er 1:1 Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu „Við soguðumst inn í þennan heim“ Stjörnumenn setja pressu á Tindastól Horfinn þegar björgunarsveitin kom á staðinn Umræðan Fíknisjúkir í forgangi Reykjavík þarf nýja samgöngustefnu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Holtavörðuheiði enn lokuð Leikskólarnir kyndi undir skjánotkuninni Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Icelandair aflýsir tólf flugferðum Sigríður telur að sér vegið Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum